Innlent

Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að út­hýsa Aþenu

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni segir Brynjar Karl fara með fleipur þegar hann heldur því fram að verið sé að úthýsa Aþenu eða skerða tíma og aðgang þeirra að húsnæðinu.
Bjarni segir Brynjar Karl fara með fleipur þegar hann heldur því fram að verið sé að úthýsa Aþenu eða skerða tíma og aðgang þeirra að húsnæðinu. Vísir

Bjarni Guðjónsson, sem fer fyrir íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkurborgar, hefur svarað Brynjari Karli Sigurðssyni körfuboltaþjálfara og segir það úr vegi að verið sé að hrekja íþróttafélagið Aþenu úr Austurbergi.

Brynjar Karl var ómyrkur í máli og sendi Bjarna harðort skeyti í gær. Hann segir framgöngu Bjarna vera mikil vonbrigði og megi hann þá heldur biðja um Skúla Helgason forvera Bjarna í íþróttaráðinu. Aþenu sagði hann í andaslitrum eftir að borgin neitaði að endurnýja samning við félagið. 

Bjarni segir þetta ekki rétt.

„Vegna umfjöllunar um málefni Aþenu þá er mikilvægt að koma réttum upplýsingum á framfæri. Síðasta föstudag samþykkti Íþrótta- og útilífsráð að borgin tæki yfir rekstur á íþróttamannvirkinu í Austurbergi 3 en húsnæðið var rekið af forsvarsmanni Aþenu ásamt Brynjari Karli,“ segir Bjarni í færslu á Facebook.

Bjarni segir borgina ekki vera að segja upp æfingaaðstöðu Aþenu né skerða tíma/aðgang þeirra að húsnæðinu.

„Félagið heldur áfram að hafa aðgang að sinni aðstöðu og áhersla er lögð á það að Aþena fái nægjan fjölda æfingatíma og aðstöðu til að starfrækja og efla sína starfsemi áfram. Ákvörðunin snýr eingöngu um breytt fyrirkomulag á rekstri mannvirkis sem er í eigu borgarinnar með það að markmiði að efla íþróttastarf barna og ungmenna í efra Breiðholti í góðri samvinnu við þau félög sem eru með starfsemi þar. Þessi breyting á þannig að styðja við það að fjölga þátttakendum sem geta nýtt húsnæðið,“ segir Bjarni.

Brynjar Karl og Aþena hefur boðað til fundar í Austurbergi í kvöld klukkan tuttugu þar sem til stendur að ræða stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×