Brennur húsið? - Opið bréf til heilbrigðisráðherra Ómar Torfason skrifar 27. október 2019 09:36 Ágæti ráðherra, „AÐGERÐA ER ÞÖRF HÉR OG NÚ Vinstri græn telja brýnt að snúa af braut einkarekstrar og verktöku í heilbrigðisþjónustu og hindra að hér festist í sessi tvöfalt kerfi þar sem fjársterkir einstaklingar geta keypt sér heilbrigðisþjónustu sem stendur öðrum ekki til boða.“ Þannig hljóða upphafsstef stefnu VG í velferðarmálum undir ofangreindum lið, en hér er vitnað beint í heimasíðu flokksins. Það er sem sé stefna flokksins að snúa sem fyrst af braut einkarekstrar og verktöku í heilbrigðisgeiranum, þannig að ekki myndist tvöfalt kerfi. Eitthvað virðist mér hér pottur brotinn. Lítum ögn á stöðuna: Ég er sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hér á höfuðborgarsvæðinu og starfa í beinum tengslum við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ), og hefur verið litið svo á frá upphafi, að tilgreindur verksamningur falli undir svokallaðan einkasamning, þ.e. að mér er óheimilt að leggja viðbótarálag á taxtann, s.s. komugjald, sem og að starfa sem sjúkraþjálfari utan samnings og krefja mína skjólstæðinga fulls gjalds, enda á hver og einn að njóta fyrirgreiðslu SÍ samkvæmt almannatryggingalögum. Þannig var frá því gengið, að ekki yrði um tvöfalt kerfi að ræða, heldur skyldi jafnræði ríkja meðal allra dýranna í skóginum. Nú er í gangi krafa um útboð varðandi sjúkraþjálfun hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Það hefur óhjákvæmilega kúvendingu í för með sér. Ekki verður séð fyrir að hver og ein stöð, þ.e. fyrirtækiskennitala, muni svara kallinu, og verður reyndar ekki séð að boðið verði í pakkann þar sem ég starfa. Það mun hafa sitthvað í för með sér fyrir slíkar stofur: Viðkomandi stofa mun fara af samningi við SÍ og segjast á Guð og gaddinn, ef svo ber undir. Þeir skjólstæðingar sem njóta fyrirgreiðslu hins opinbera s.s. vegna örorku eða aldurs, verða óhjákvæmilega að leita sér þjónustu á þeim stöðum sem verða sér úti um mannauðskvóta. Þar með lýkur öllum persónulegum tengslum, auk þess sem þjónustan gæti verið víðs fjarri. Við höfum/höfðum reyndar lyf, að Ferliþjónustunni ógleymdri, en óvíst er að hún taki við auknu álagi að öllu óbreyttu. Menn boða þó byltingu með Borgarlínunni.Það mun pottþétt myndast öflugra tvöfalt kerfi en nú er. Reikna má með að bótaþeginn neyðist til að leita á náðir mannauðskvótagreifanna og verði að sætta sig við (mis)langar biðraðir, s.s. breska NHS-kerfið býður upp á, meðan þeir sem hafa eitthvað milli handanna sjái sér fært að leita til meðferðaraðila utan SÍ og greiða svo sem sett er upp fyrir þá þjónustu. Til viðbótar má gera ráð fyrir að í einhverjum tilvikum slái menn af taxtanum og fari svart, þ.e. enn eitt kerfið. Krafa EES er að öll verksala innan heilbrigðiskerfisins fari í útboð. Við erum hér, auk sjúkraþjálfunar, að tala um lækna, bæði almenna og sérfræðinga, hjúkrunarfræðinga, tannlækna, iðjuþjálfa, mögulega sálfræðinga og jafnvel fleiri. Það er því eftir nokkru að slægjast út frá heildarmyndinni. VG tilgreinir, að ekki megi koma upp kerfi þar sem fjársterkir aðilar geti keypt sér heilbrigðisþjónustu. Það er og. Við má bæta að fjársterkir aðilar geta mögulega keypt upp helstu þætti heilbrigðisþjónustunnar, myndað stórar einingar, og yfirtekið markaðinn. Það er flest falt fyrir góðan pening. Þetta er samsvarandi til staðar í sjávarútveginum. Tökum dæmi: Skjólstæðingur minn einn átti erindi á ótilgreinda heilsugæslustöð um daginn, þar sem hann greiddi „x“ upphæð fyrir blóðrannsókn, auk þess sem hann greiddi kr. 1.200,- í komugjald, þ.e. gjald utan samnings stofnunarinnar við SÍ. Ef ég svæfi með koddann fullan af seðlum, þá mundi ég hiklaust skoða þann möguleika að komast inn í kerfi sem þetta, þar sem arðgreiðslur geta mögulega orðið allvænar. Einkarekstur er staðreynd í nútíma samfélagi. Landinn er misfjáður, og var almannatryggingakerfið upphaflega hugsað sem jafnræði til aðgengis að heilbrigðisþjónustunni. Þannig var í reynd enginn eða lítill munur á Jóni og séra Jóni. Má ætla að þá hafi fyrirgreiðslupólitíkin fyrst og fremst legið í innbyrðis tengslum. Þá gilti einnig mottóið: „Svona gerum við hreint ekki.“ Nú er öldin önnur og hin eiginlega siðfræði á (hröðu?) undanhaldi. Hver er sjálfum sér næstur. Þess vegna kann að teljast í lagi að klippa á öll persónuleg tengsl í endurhæfingunni, enda væntanlega aukaatriði út frá ótilgreindum alþjóðlegum staðli, senda þá sem minna mega sín mögulega langar leiðir í mislangar biðraðir í misjöfnum veðrum, og viðhafa að endingu eignaupptöku hjá fjölda stofueigenda sem ná á engan hátt að uppfylla þann alþjóðlega gæðastaðal sem hið opinbera leggur til grundvallar sínum kröfum. Þú tókst við Velferðarþjónustuhúsinu í kjölfar síðustu kosninga og fannst, hvað ég hef lesið og heyrt, að sitthvað mætti þar vera á annan veg en reyndin var og er. Það lítur svo út fyrir mér frá mínum bæjardyrum séð, að þú hafir í upphafi vegferðar hreinlega fórnað höndum og borið einhvers konar hreinsunareld að öllu húsinu í stað þess að taka til í þeim herbergjum sem ógnuðu þinni hreinlætisvitund. Það er miður, að flokkur sem biðlar til hinna lægra settu í samfélaginu skuli á sama tíma hrekja þá hina sömu út í öngstræti hins tvöfalda kerfis.Höfundur er sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Ómar Torfason Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar