Ástrali fær háar bætur eftir að hafa setið saklaus í fangelsi í nítján ár Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2019 08:38 David Eastman var árið 1995 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða lögreglumanninn Colin Winchester sex árum fyrr. epa
Ástrali sem sat saklaus í fangelsi í nítján ár fékk í morgun bætur frá fylkisstjórninni í höfuðborginni Canberra fyrir það sem hann þurfti að ganga í gegnum. David Eastman var árið 1995 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða lögreglumanninn Colin Winchester sex árum fyrr. Honum var síðan sleppt á þeirri forsendu að réttarhöldin yfir honum hafi verið gölluð, og var síðan sýknaður af morðinu en þó ekki fyrr en hann hafði setið inni í nítján ár. Morðingi lögreglumannsins hefur aldrei fundist. Eastman, sem nú er orðinn 74 ára gamall, fékk sjö milljónir ástralskra dala í bætur, sem gera rétt tæpar 600 milljónir íslenskra króna. Hann hafði áður hafnað boði yfirvalda bætur upp á 3,8 milljón ástralskra dala, um 325 milljónir íslenskra. Sagðist hann hafa misst af tækifæri til að eignast fjölskyldu og átt starfsframa vegna afplánunar sinnar. Rannsókn á morðinu á lögreglumanninum Winchester er ein sú umfangsmesta í sögu Ástralíu. Hann var skotinn í höfuðið í tvígang fyrir utan heimili sitt í höfuðborginni Canberra árið 1989. Eastman var á þessum tíma opinber starfsmaður og lá undir grun þar sem hann átti að hafa sent lögreglu hótanir vegna rannsóknar á sakamáli.
Ástralía Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira