Spá yfir 20 stiga hita í dag Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 13. júní 2019 07:35 Gert er ráð fyrir að þokunni létti víðast hvar þegar líður á morguninn. Vísir/Vilhelm
Þoka hefur verið viðloðandi landið í nótt en búast má við að henni létti víðast hvar þegar líður á morguninn. Í hugleiðingum vakthafandi veðurfræðings kemur fram að líklegt sé að hitastig fari yfir 20 gráður í innsveitum á Vesturlandi og uppsveitum Suðurlands í dag. Austantil er þó áfram nokkuð skýjað og heldur svalara í veðri. Ekki er útlit fyrir úrkomu á vestanverðu landinu næstu daga og því áfram brýnt að fara varlega með eld vegna hættu á gróðureldum. Enn er mikið hæðarsvæði á milli Íslands og Grænlands.Hlýjast á Suðurlandi Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt, 5-13, hvassast á annesjum austanlands en snýst smám saman í suðaustlæga átt 5-10. Í veðurspá fyrir daginn í dag segir að þokuloft verði víða á Vesturlandi í fyrstu en annars skýjað með köflum eða bjartviðri en dálítil súld eða rigning norðan og austanlands. Hiti 7 til 14 stig norðaustantil en annars 14-23 stig og hlýjast á Suðurlandi. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á föstudag: Norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 suðaustantil á landinu. Bjart með köflum, en skýjað austanlands. Hiti frá 7 stigum með austurströndinni, en allt að 20 stig í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi. Á laugardag: Austan 5-10 m/s. Dálítil rigning suðaustanlands. Bjart með köflum á vesturhelmingi landsins, en líkur á skúrum síðdegis. Hiti frá 8 stigum austast, upp í 19 stig á Vesturlandi. Á sunnudag: Hæg austlæg átt og víða skýjað, en bjart veður suðvestantil á landinu. Hiti 12 til 18 stig, en svalara austanlands og á annesjum fyrir norðan. Á mánudag (lýðveldisdagurinn): Norðan 3-8 og dálítil rigning með köflum, en léttskýjað vestantil á landinu. Hiti 10 til 18 stig yfir daginn. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir austlæg átt og dálitil rigning með köflum, en yfirleitt þurrt norðanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Segja áætlanir um hallaleysi „hanga á bláþræði“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Sjá meira