Katrín og Bjarni sögðu málflutning Sigmundar Davíðs á lágu plani Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. júní 2019 15:02 Þau Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, gáfu lítið sem ekkert fyrir málflutning Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í umræðu um kjararáð á þingi í dag.
Þau Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, sögðu málflutning Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þingmanns og formanns Miðflokksins, á lágu plani á þingfundi í dag þegar þau tóku þátt í þriðju umræðu um kjararáð og frumvarp Bjarna um breytingar á ýmsum lögum í kjölfar þess að kjararáð var lagt niður í fyrra. Sigmundur tók fyrstur til máls í umræðunni þar sem fyrir lá breytingartillaga frá honum varðandi laun forsætisráðherra og annarra ráðherra. Lagði hann til að lækka laun forsætisráðherra úr 2.021.825 krónum í 1.596.731 krónur og svo laun annarra ráðherra úr 1.826.273 krónum í 1.431.552 krónur. Sagði Sigmundur vilja með þessu jafna stöðu löggjafarvalds og framkvæmdavalds með því að draga úr því sem hann sagði mikinn launamun á milli ráðherra og þingmanna en þingfararkaup er 1,1 milljón króna. „Með þessu er vonandi hægt ekki aðeins að jafna stöðu löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins heldur einnig að draga úr líkunum á því að einhverjir flokkar kynnu að gefa eftir stefnu sínu, grundvallarsjónarmið, kosningaloforð, til þess eins að ná í fáeina ráðherrastóla. Ég lít svo á að verði þetta samþykkt þá sé eðlilegt í framhaldinu að skoða reglur um þingfararkaup, meðal annars með tilliti til álagsgreiðslna formanna flokka,“ sagði Sigmundur Davíð.Gaf ekkert fyrir breytingartillöguna Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók til máls á eftir Sigmundi og kvaðst gefa lítið fyrir breytingartillögu hans. Sagði hún hana fyrst og fremst lagða fram í þágu mælskulistar til þess að varpa rýrð á þá sem sitja sem ráðherrar. „Og gefa í skyn að þeirra heilindi séu ekki næg í starfinu og allt snúist þetta um launatölur. Ég gef bara ekkert fyrir það og ég held að þingmenn ættu frekar að horfa til þeirrar vinnu sem hér liggur að baki, þeirrar skýrslu sem hér hefur verið lögð fram og þeirrar vinnu sem háttvirt efnahags- og viðskiptanefnd hefur í kjölfarið lagt í málið, samþykkja þetta mál og reyna að stíga hér eitt framfaraskref til aukinnar sáttar á vinnumarkaði án þess að gera þetta enn og aftur að ásteytingssteini að óþörfu,“ sagði Katrín.Röksemdafærslan ekki samboðin málinu Þá kom Bjarni næstur upp í pontu. Hann sagði að það mætti alveg velta því fyrir sér hvaða viðmið ættu að gilda varðandi innbyrðis samræmi þeirra sem eru í efstu lögum þrískiptingar ríkisvaldsins. Fram til þessa hefði verið horft til þess að kjör forsætisráðherra væru því sem næst jöfn kjörum forseta Íslands og handhöfum æðsta dómsvalds í landinu. Aðrir ráðherra væru svo skör lægra. „Einhverjum kann að þykja, eins og háttvirtum flutningsmanni greinilega, að þar sé of mikið bil myndað milli löggjafarþingsins og viðkomandi fagráðherra. En þá er til þess að líta að þingið fyrir nokkrum árum gerði breytingu á þessu hvað snertir þá formenn flokka sem eru í stjórnarandstöðu og setti 50 prósent álag á greiðslur til þeirra svo þeir mættu vera álíka settir og ráðherra,“ sagði Bjarni. Bætti hann svo við að vegna þessa væri stórundarlegt að hlusta á umræðu um það væri slíkur launamunur hjá ráðherrum og þingmönnum að þar væri til staðar sérstakur hvati til þess að kasta stefnumálunum frá sér. „Með þessum rökum væri alveg eins hægt að segja að álagsgreiðslan til formanns væri sérstakur hvati til þess að stofna nýjan stjórnmálaflokk og gerast í honum formaður og ná sér þannig í greiðsluna. En ég myndi ekki halda því fram að nokkur myndi gera það nokkurn tímann,“ sagði Bjarni og uppskar hlátur í þingsal en eins og flestir vita stofnaði Sigmundur Davíð Miðflokkinn og gegnir formennsku í þeim flokki. Sagði Bjarni röksemdafærslu á þessu plani ekki málinu samboðna og tók undir með forsætisráðherra um að málið væri vel unnið. Sigmundur Davíð kom svo aftur upp í pontu og sagði að svo virtist sem fjármálaráðherra hefði misst af ræðunni hans. Hann minnti svo á það að hann hefði sérstaklega nefnt að taka ætti formannsálagið til skoðunar í framhaldinu af breytingartillögunni ef hún yrði samþykkt. Skemmst er frá því að segja að breytingartillagan var felld og frumvarpið svo samþykkt með 31 atkvæði en 18 sátu hjá og 14 voru fjarstaddir.
Alþingi Kjararáð Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Sjá meira