18 ára á tæplega 180 km hraða Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. maí 2019 06:21 Drengurinn ók bíl sínum á ógnarhraða eftir Kringlumýrarbraut. Vísir/GVA
Lögreglan hafði afskipti af fjölda ökumanna í nótt sem með einum eða öðrum hætti eru taldir hafa komist í kast við lögin. Það var t.a.m. raunin með ökumann sem mældist á 177 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut skömmu eftir miðnætti. Þar er hámarkshraði 80 km/klst og var ökumaðurinn, sem reyndist aðeins 18 ára gamall og því nýkominn með bílpróf, á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Lögreglan segist hafa flutt drenginn á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Að honum frátöldum tengdust flest umferðarlagabrot næturinnar akstri ökumanna undir áhrifum vímuefna. Margir þeirra höfðu jafnframt fíkniefni í fórum sínum eða reyndust aka eftir að hafa verið sviptir ökuréttindum. Lögreglan segist þó einnig hafa fengði annars konar tilkynningar í nótt. Til að mynda á hún að hafa haft afskipti af drukknum manni í stigagangi í Kópavogi skömmu fyrir miðnætti. Lögreglumenn eiga að hafa reynt að aðstoða manninn við að komast heim en það hafi ekki gengið sökum ástands mannsins. Hann hafi því verið fluttur í fangaklefa þar sem hann hefur fengið að sofa úr sér vímuna í nótt.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira