Prófessor við Stanford sagður hafa aðstoðað við umdeilda tilraun Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 15. apríl 2019 07:00 Tilraunir Jiankui hafa verið fordæmdar víða um heim. Nordicphotos/Gettty
Stanford-háskóli í Kaliforníu hefur hafið athugun á því hvort einn af starfsmönnum háskólans hafi aðstoðað kínverska erfðafræðinginn He Jiankui við að breyta erfðum tveggja lífvænlegra fósturvísa sem síðar urðu að tveimur stúlkubörnum. Vísindamaðurinn sem um ræðir heitir Stephen Quake, en hann er heimsþekktur lífefnaverkfræðingur, eðlisfræðingur og prófessor við Stanford-háskóla. Quake var lærimeistari Jiankui en samskipti vísindamannanna eru rakin í umfjöllun The New York Times. Þar segir að Jiankui hafi tilkynnt Quake að tekist hefði að koma fósturvísunum fyrir og að erfðabreytingaferlið hefði heppnast. „Vá, það er mikið afreksverk,“ svaraði Quake. „Vonandi mun meðgangan ganga vel.“ Tilraunir Jiankui hafa verið fordæmdar afdráttarlaust af vísindamönnum víða um heim. Kínversk yfirvöld rannsaka nú tilraunir hans. Rannsókn Stanford-háskóla hófst eftir að forseti kínverska háskólans þar sem Jiankui starfaði fullyrti að Quake hefði tekið þátt í tilraunum Jiankui með því að hjálpa honum með undirbúning og framkvæmd þeirra. Í samtali við The New York Times þvertekur Quake fyrir að hafa aðstoðað Jiankui. „Ég hafði ekkert að gera með þetta,“ hefur miðillinn eftir Quake. „Ég reyni alltaf að fylgja siðferðilegum viðmiðum.“
Bandaríkin Birtist í Fréttablaðinu Vísindi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira