Miðflokksins að öðlast traust kjósenda á ný Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. mars 2019 12:30 Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson voru meðal þeirra sem tóku þátt í Metoo-umræðum í morgun. Vísir/baldur
Þingmaður Miðflokksins telur flokksmenn sína eiga enn eftir að endurvinna traustið sem tapaðist í Klaustursmálinu. Þeir hafi mátt þola opinbera smánun en séu staðráðnir í því að vinna með öðrum stjórnmálaflokkum í baráttunni gegn kynferðislegri áreitni. Þverpólitísk samstaða virðist ríkja í þingheimi um að kynferðisleg áreitni og ofbeldi verði ekki liðið í stjórnmálum á Íslandi, ef marka má það sem fram koma á morgunverðarfundi stjórnmálaflokka um Metoo og pólítikína í morgun. Þrátt fyrir það er enn mikið óunnið í þessum efnum að sögn Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformanns Pírata. „Það eru ekki nema fjórir-fimm mánuðir síðan Klaustursmálið reið yfir og við sjáum það að við eigum enn langt í land. Við verðum að fá karla sem brjóta af sér til að taka ábyrgð og hætta að benda fingrinum í allar áttir,“ segir Þórhildur og bætir við að það vanti ákveðna „ábyrgðarmenningu“ í stjórnmál á Íslandi.Samstillt átak lausnin „Við verðum að viðurkennum að það sé eðlilegt að taka pólitíska ábyrgð á mistökum sínum, annars mun lítið gerast í þessum efnum. Það er þó von og ég hugsa að með sameiginlegu átaki allra þessara flokka getum við komið því um kring að það verði alvöru afleiðingar við kynferðisáreiti og ofbeldi á Alþingi Íslendinga,“ Í máli sínu í dag beindi Þórhildur ekki síst orðum sínum að Klaustursmálinu og þingmönnum Miðflokksins. Einn þeirra, Þorsteinn Sæmundsson, sat við hlið Þórhildar í pallborðsumræðum á fundinum í dag.Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata,.Vísir/vilhelmHann er nýkominn heim frá kvennaráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í New York og segist innblásinn af því sem þar var til umræðu. „Það er alveg klárt mál að nú er komið að karlmönnum að taka ábyrgð á sínum gjörðum og því sem þeir segja. Þessi mál sem við erum að ræða núna þau verða aldrei til lykta leidd með sæmilegum hætti nema að karlmenn gagnist við sinni ábyrgð - og það er það sem við viljum gera,“ segir Þorsteinn.Fyrstir í gapastokkinnSpjótin hafa beinst af samflokksmönnum Þorsteinn allt frá því að Klaustusmálið kom upp. Hvernig eru þeir karlmenn að gangast við sinni ábyrgð?„Þeir hafa leitað sér ráðgjafar og þeir hafa náttúrulega verið opinberlega smánaðir - örugglega þeir fyrstu sem settir eru í gapastokinn á opinberum vettvangi í ein 200 ár,“ segir Þorsteinn.„En þeir taka því, enda brutu þeir af sér.“ Þorsteinn minnir á að fleiri kynferðisáreitnismál hafi rekið á fjörur þingsins á síðustu mánuðum og vísar þar til máls Ágústs Ólafs Ágútssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Þorsteinn telur það mál hafa fallið í skuggann á Klaustursmálinu en mikilvægt sé að þingheimur taki á öllum sambærilegum málum sem upp koma af alvöru. „Þetta verða ekki einu eða síðustu málin þessarar tegundar sem við munum sjá, því miður.“Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins.Vísir/FrostiAðspurðir um hvaða viðurlög séu við hæfi í málum sem þessum segir Þorsteinn að ekki megi gleyma því að þingmenn beri fyrst og fremst ábyrgð gagnvart kjósendum. „Við erum kosin af fólki til fjögurra ára, við stundum þeim því reikningsskap eftir fjögur ár. Við eigum að koma af virðingu fram við þetta fólk, fólkið sem kaus okkur til starfa. Það verðum við líka að gera með því að bera virðingu fyrir sjálfum okkur og þeim sem eru í kringum okkur,“ segir Þorsteinn og vísar til Gullnu reglunnar: Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.En þýðir það að þingmenn geti hagað sér eins og apakettir í fjögur ár og þurfi aðeins að bíða dóms kjósenda að kjörtímabilinu liðnu?„Umboðið er þaðan. Ef við ætlum að taka það frá fólkinu þá þurfum við að breyta ótrúlega miklu, sem ég held að sé ekki á okkar færi að gera,“ segir Þorsteinn.Sigmundur lofaði bót og betrun Öllum sé þó að endingu refsað fyrir misgjörðir sínar að sögn Þorsteins og segir hann flokk sinn ekki undanskilinn því að uppskera eins og hann hefur sáð. Hann hafi til að mynda mátt þola mikið fylgistap frá því að Klaustursmálið kom upp, þó svo að þingstyrkur hans hafi aukist með tilkomu tveggja þingmanna Flokks Fólksins. „Við þurfum því að endurvinna traust og við megum ekkert kvarta undan því. Mönnum varð á og við erum að súpa seyðið af því. Við tökum á því með einum hætti og það er með því að bæta okkur,“ segir Þorsteinn. „Sigmundur sagði strax eftir þennan atburð að flokkurinn myndi vera til fyrirmyndar og við erum að vinna að því. Með því, vonandi, getum við endurunnið traust - og auðvitað með verkum okkar.“
Alþingi MeToo Miðflokkurinn Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Fleiri fréttir Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Sjá meira