Með sýknu verði þjóðin vitni að réttlæti Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 14. september 2018 17:00
Málflutningi í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála lauk í dag og eru málin nú höndum dómara Hæstaréttar. Verjandi í málinu segir að ef sakborningar verði sýknaðir verði þjóðin vitni að réttlæti. Í málflutningi í dag var áfram lögð áhersla á að framburðir sakborninganna hefðu ekki verið áreiðanlegir. Tryggvi Rúnar Brynjarsson, barnabarn Tryggva Rúnars, var viðstaddur málflutning bæði í dag og í gær og hefur meðal annars skrifað mastersritgerð um dagbækur afa síns. Hann segir sérkennilegt að vera í dómsal og heyra fólk koma orðum að lýsingum sem hann hefur lesið margoft. Hann segir að sýkna í málinu dugi ekki til ef rétta á hlut afa hans, sem lést árið 2009. „Það er ennþá rosalega margt sem mér finnst að dómsvöld eigi að taka afstöðu til. Þetta í raun og veru, að segja að rannsóknin hafi verið gölluð og segja að játningar og framburðir hafi verið óáreiðanlegir. Það eitt og sér fjallar ekki um þessa sviptingu á frelsi og það að vera ranglega dæmdur og þurfa að lifa í samfélaginu. Það byrjar ekki einu sinni að komast nálægt því að kafa ofan í þann hluta,“ segir Tryggvi Rúnar.Tryggvi Rúnar Brynjarsson, barnabarn Tryggva Rúnars Leifssonar.Vísir/VilhelmHann segist jafnframt vona að einhvern veginn sé hægt að viðurkenna það ranglæti sem afi hans hafi mátt sæta og að fjölskyldan muni halda áfram með málið eins langt og hægt er innan dómskerfisins. „Svo er hitt að maður verður að halda áfram að vekja athygli á sumum hlutum sem hefðu getað farið betur og það er kannski eitthvað sem þarf að eiga sér stað utan dómsals.“Gaman að allir séu sammála um meginatriði Jón Magnússon, verjandi Tryggva Rúnars Leifssonar, telur að ef sýknað verði muni þjóðin fá að verða vitni að réttlæti. Hann telur jafnframt að sýkna geti aukið traust almennings á dómstólum í landinu. „Þetta mál hefur alltaf verið eins og ákveðinn fleinn í holdi stórs hluta þjóðarinnar. Fólk hefur ekki verið sátt við það og það er náttúrulega svo margt í þessu máli sem sýnir fram á það að þarna voru hlutirnir ekki með eðlilegum hætti. Þarna voru játningar þvingaðar fram. Það voru píningar, það var torture, hreinlega þó ekki sé neitt annað en það í hve langri gæsluvarðhaldsvist hin grunuðu voru. Minn skjólstæðingur var í yfir 600 daga, hann var í tæp tvö ár í einangrun. Það er ekkert annað en hreinlega algjör torture.“ Jón segir jafnframt að málflutningur hafi gengið vel síðustu daga. „Það var mjög gaman að fylgjast með því að í öllum meginatriðum þá er samhljóða málflutningur um þessi atriði, bæði saksóknari og verjendur eru sammála um það að þarna hafa orðið veruleg mistök við meðferð þessa máls og það komi ekki til annað en að kveðja upp sýknudóm í málinu.“Erla Bolladóttir í Hæstarétti í dag.Vísir/VilhelmSýkna vekur jafnframt upp margar spurningar Erla Bolladóttir var dæmd árið 1980 fyrir rangar sakargiftir og tálmun rannsóknar en fékk mál sitt þó ekki endurupptekið nú. Hún segist líta svo á að ef framburðir hinna sakborninganna séu óáreiðanlegir eigi það þá einnig við um hennar framburði í málinu. Hún segir þó að hún muni aldrei fá sálarró fyrr en endanleg niðurstaða liggi fyrir um að sakborningarnir sex hafi aldrei komið nálægt málunum. „Með því sem hér gerðist í dag og væntanlega sýknu í framhaldinu þá er um leið ljóst að allir mínir framburðir sem höfðu mikið vægi í sakfellingu sakborninga, þeir eru ómerkir. Þannig að það á bara við um allan minn framburð. Hann er ómerkur. Dómarnir voru byggðir á honum að miklu leyti. Í ákveðnu tilliti þá er ég sýknuð um leið.“ Aðspurð segir Erla þó að erfitt sé að hljóta sálarró. „Ég fengi frið fyrir þessu máli með endanlegri niðurstöðu um að ljóst sé að við komum hvergi nærri neinu af því sem við játuðum á okkur. Þangað til fæ ég ekki ljúkningu en ég hins vegar harma það að allt líf okkar hafi skuli verið lagt undir frá tvítugu og það sem eftir er. Ég kemst aldrei undan þessu máli en það væri virkileg breyting ef dómsmálayfirvöld sæju ljósið og kæmust að réttri niðurstöðu.“ Erla segir að sýkna verði ákveðin endalok fyrir hana og aðra sakborninga sem og afkomendur þeirra. „En gagnvart samfélaginu þá hlýtur sýkna að vekja margar spurningar um hvernig gat þetta þá gerst. Mínu m hluta er þá lokið en væntanlega munu aðrir standa upp og krefjast svara um ýmislegt sem komið hefur fram um hvernig þetta gerðist.“
Dómsmál Guðmundar- og Geirfinnsmálin Tengdar fréttir „Nú er komið að þeirri stundu að hleypa sannleikanum inn“ Málflutningi í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna lauk um klukkan 11 í morgun. 14. september 2018 13:29 „Þetta var dómsmorð“ Ragnar Aðalsteinsson, verjandi Guðjóns Skarphéðinssonar, fór fram á að skjólstæðingur sinn verði ekki aðeins sýknaður heldur lýstur saklaus við endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna í Hæstarétti Íslands í dag. 13. september 2018 17:54 „Ef þetta væri ekki svona grátlegt þá væri þetta einn stór brandari“ Málflutningur í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála hófst í Hæstarétti Íslands klukkan 9 í morgun. 13. september 2018 13:04 Værum ekki hér „ef ekki hefði verið fyrir baráttuþrek Sævars Ciesielski“ Oddgeir Einarsson, verjandi Sævars Marínós Ciesielski, tók undir kröfu ákæruvaldsins um að Sævar verði sýknaður við endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna í Hæstarétti. 13. september 2018 19:11 Mest lesið Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Fleiri fréttir Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Sjá meira
„Nú er komið að þeirri stundu að hleypa sannleikanum inn“ Málflutningi í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna lauk um klukkan 11 í morgun. 14. september 2018 13:29
„Þetta var dómsmorð“ Ragnar Aðalsteinsson, verjandi Guðjóns Skarphéðinssonar, fór fram á að skjólstæðingur sinn verði ekki aðeins sýknaður heldur lýstur saklaus við endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna í Hæstarétti Íslands í dag. 13. september 2018 17:54
„Ef þetta væri ekki svona grátlegt þá væri þetta einn stór brandari“ Málflutningur í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála hófst í Hæstarétti Íslands klukkan 9 í morgun. 13. september 2018 13:04
Værum ekki hér „ef ekki hefði verið fyrir baráttuþrek Sævars Ciesielski“ Oddgeir Einarsson, verjandi Sævars Marínós Ciesielski, tók undir kröfu ákæruvaldsins um að Sævar verði sýknaður við endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna í Hæstarétti. 13. september 2018 19:11