Mangkhut olli usla í Filippseyjum og er nú á leið til Kína Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2018 08:56 Vitað er um tvær konur sem dóu í aurskriðu nærri borginni Bangio en talið er að tala látinna muni hækka og jafnvel verulega. Vísir/AP
Minnst tveir eru dánir eftir að fellibylurinn Mangkhut fór yfir Filippseyjar. Þar olli óveðrið miklum skaða og eru til dæmis nánast allar byggingar í borginni Tuguegarao skemmdar á einhvern hátt, samkvæmt embættismönnum þar. Minnst fjórar milljónir manna bjuggu á svæðinu sem fellibylurinn fór yfir en honum fylgdi um 50 m/s vindur og mikil flóð. Vitað er um tvær konur sem dóu í aurskriðu nærri borginni Bangio en talið er að tala látinna muni hækka og jafnvel verulega. Árið 2013 skall fellibylurinn Haiyan á Filippseyjum og þá dóu rúmlega sjö þúsund manns. Að meðaltali fara tuttugu fellibylir og óveður yfir Filippseyjar á ári hverju og valda þar miklum skaða. Afskekt samfélög fátækra sem reiða sig á fiskveiðar eru hvað viðkvæmust fyrir óveðrunum. Mangkhut er nú á leið til Kína og Hong Kong. Fellibylurinn missti þó einhvern styrk yfir Filippseyjum. Í Hong Kong búa íbúar og yfirvöld sig undir átökin og þá sérstaklega fyrir sjávarflóð sem búist er við að verði mikil, samkvæmt AFP fréttaveitunni.
Filippseyjar Hong Kong Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira