Búið að finna eftirmenn Inga Þórs í Hólminum Arnar Geir Halldórsson skrifar 28. júní 2018 09:00 Darrell Flake, til hægri, verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá Snæfelli
Körfuknattleiksdeild Snæfells var með pennann á lofti í Stykkishólmi í gær þegar tilkynnt var um ráðningu á nýju þjálfarateymi hjá báðum meistaraflokkum félagsins auk þess sem lykilmenn skrifuðu undir nýja samninga.Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Ingi Þór Steinþórsson hefur stýrt karla og kvennaliði félagsins undanfarin ár en hann færði sig um set á dögunum og tók við KR. Baldur Þorleifsson tekur við kvennaliði Snæfells en hann hefur aðstoðað Inga Þór þar undanfarin tímabil. Baldur er fyrrum leikmaður Snæfells og sá elsti til að skora körfu í efstu deild. Vladimir Ivankovic mun aðstoða Baldur með kvennaliðið auk þess að þjálfa karlaliðið. Snæfell hefur verið með öflugt lið í kvennaboltanum undanfarin ár og verða það áfram því þær Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur, Rebekka Rán Karlsdóttir og Thelma Lind Hinriksdóttir hafa framlengt samninga sína við félagið. Darrell Flake í HólminnÁðurnefndur Vladimir Ivankovic mun stýra karlaliðinu sem er í 1.deild. Ivankovic er króatískur og með flotta ferilskrá á bakinu en hann hefur þjálfað í Króatíu, Serbíu, Þýskalandi og Rúmeníu. Hann var með kvennalið í Euroleague um tíma auk þess sem hann var landsliðsþjálfari króatíska kvennalandsliðsins. Darrell Flake kemur frá Skallagrím til Snæfells og verður spilandi aðstoðarþjálfari en Flake á farsælan feril hér á landi þar sem hann hefur leikið með Tindastól, Grindavík og fleiri félögum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sagði konu sinni og börnum að lesa ekki kommentin Fótbolti Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Handbolti Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Handbolti Utan vallar: Fjórða sætið, í alvöru? Enski boltinn Ferðaðist nærri 9000 km og borgaði fúlgur fjár fyrir ógildan miða Enski boltinn Wirtz alveg kominn með nóg af einni ráðleggingu Enski boltinn Baðst afsökunar eftir algjöra „heimsku“ Enski boltinn Varar við áhorfendum á Ryder Cup: „Hey Rahmbo, hvar er Ozempicið?“ Golf Bandarísku kylfingarnir gefa Ryder-launin eftir gagnrýni Golf Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Enski boltinn Fleiri fréttir Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Sjá meira