„Þetta var augnablik fullkominnar skelfingar“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. maí 2018 10:52 Claire heilsast vel. Mynd/Claire Nelson.
Nýsjálenski ferðamaðurinn Claire Nelson lenti í heldur óskemmtilegri lífsreynslu er hún var á göngu í eyðimörkinni í Suður-Kaliforníu á dögunum. Hún hélt daga sína talda eftir að hafa fallið og brotið mjöðmina í óbyggðunum. Nelson var á ferð í Joshua Tree þjóðgarðinum. Lagði hún af stað eldsnemma í göngu. Áætlaði hún sex tíma í gönguna og var hún ágætlega útbúin, með nóg af vatni. Lét hún vita af ferðum sínum í þjónustumiðstöð áður en hún lagði af stað. Fyrstu þrjá kílómetra göngunnar fylgdi hún gönguslóðinni líkt og hún ætlaði sér. Þegar hún var hins vegar að nálgast fimm kílómetrana áttaði hún sig á því að hún væri komin af gönguslóðinni. Klifraði hún því upp á stein til þess að hvíla sig og átta sig á því hvert hún ætti að fara. „Það var þegar ég ætlaði að klifra niður steininn sem ég rann og datt niður,“ sagði Nelson í samtali við BBC. „Ég vissi að það væri ekkert sem ég gat gert en þetta gerðist samt svo hægt.“Mikil hræðsla og örvænting Nelson áttaði sig strax á því að eitthvað slæmt hefði gerst þar sem hún fann fyrir miklum sársauka og gat ekki hreyft sig. Síðar kom í ljós að hún hafði brotið mjöðm. Ekkert samband var á símanum hennar og því gat hún ekki hringt í neyðarlínuna. Hræðsla og örvænting fyllti huga Nelson. „Ég hugsaði: Ég trúi ekki að ég sé í þeirri aðstöðu að ég sé hérna ein, enginn veit að ég er hérna, ég er búin að slasa mig og ég get ekki haft samband við neinn,“ sagði Nelson. „Þetta var augnablik fullkominnar skelfingar.“Skipti deginum upp í verkefni Nelson var þó fljót að ná áttum og fór að íhuga hvernig hún gæti hámarkað möguleika sína á því að lifa af. Það eina sem hún hafði stjórn á í þessum aðstæðum væri hversi lengi hún gæti tórað. Hún áttaði sig á því að hún þyrfti að spara vatn og finna leið til þess að koma sér úr sólinni. Hún notaði prik og plastpoka til þess að búa sér til sólskýli og þegar hún kláraði vatnið daginn eftir fallið drakk hún eigin þvag til þess að komast af. Þá hélt hún sjálfri sér upptekinni og skipti deginum upp í verkefni. Þá var tilhugsunin um ástvini, uppáhalds mat og staði eitthvað sem hélt í henni lífinu. „Ég tók upp stutt myndbönd til þess að ganga úr skugga um að ef einhver myndi finna mig myndi vera ljóst hvað hafði komið fyrir,“ sagði Nelson. Alls var hún fjóra daga og þrjár nætur í eyðimörkinni.Joshua Tree þjóðgarðurinn er vinsæll áfangastaður ferðamanna.Vísir/GettyÖskraði á hjálp fyrri hluta dagsins Fyrri hluti dagsins öskraði hún á hjálp en síðari hluta dagsins nýtti hún í að halda sér frá sólinni. Segir hún að fjórði og síðasti dagurinn áður en henni var bjargað hafi verið sá erfiðasti. „Það var sérstaklega heitt og ég átti í miklum erfiðleikum með að halda í vonina,“ sagði Nelson. „Ég sofnaði og vaknaði til skiptis og hugsaði með mér hversu lengi ég gæti haldið þetta út.“ Það var þá sem hún heyrði í þyrlu. Byrjaði hún að öskra af lífs og sálarkröftum en það var ekki fyrr en hún gat veifað prikinu með plastpokanum sem hún nýtti sem sólskýli sem hún náði athygli björgunarmannanna. Nelson liggur nú á spítala þar sem hún er að jafna sig en í samtali við BBC segir hún að þrátt fyrir að endurhæfingin gangi vel hafi hún töluverðar áhyggjur af þeim reikningum sem safnast hafa upp vegna sjúkrahúsvistunarinnar. „Þegar reikningurinn kemur þá veit ég ekki hvað verður á honum.“
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira