Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. júlí 2026 06:56 Araghchi játaði í viðtalinu að Íranir hefðu unnið að því að skapa sundrung milli Bandaríkjanna og Ísrael. Getty/Murtadha Al-Sudani Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur.
Utanríkisráðherrann lýsti atburðarásinni í viðtali við íranska blaðamanninn Javad Mogouyi, sem var tekið áður en átök brutust út að nýju milli Bandaríkjanna og Íran. Araghchi segir meðal annars í viðtalinu að hann hafi ekki enn hitt son Khamenei, Mojtaba Khamenei, en að útnefning hans sem nýs leiðtoga Íran hafi sent mikilvæg skilaboð um að það yrðu engar breytingar á hugsjónum né stefnu stjórnvalda. Utanríkisráðherrann staðfesti að Íranir hefðu verið reiðubúnir til að semja við Bandaríkjastjórn um kjarnorkuáætlun landsins en verið upplýstir af utanríkisráðherra Óman daginn eftir viðræður í Genf að tónninn í Bandaríkjamönnum hefði allt í einu orðið herskárri en áður. Daginn eftir hefðu Ísrael og Bandaríkin gert árásir gegn klerkastjórninni. Araghchi lýsir því hvernig hann hefði verið á fundi með Ali Asghar Hijazi, einum undirmanna Khamenei, þegar þrjár sprengingar urðu á nokkrum sekúndum. Byggingin hefði skolfið og hlutar hennar hrunið. Hann og Hijazi hefðu sloppið lifandi en ritari síðarnefnda látist samstundis. Hróp eftir aðstoð hefðu borist úr rústunum en þegar út var komið hefði blasað við hvernig hnitmiðaðar árásir höfðu verið gerðar á ákveðna hluta byggingarinnar. Ráðherrann fékk far með ókunnugum ökumanni aftur í utanríkisráðuneytið, þar sem opinber bifreið hans var ónýt eftir árásirnar. „Í þrjá daga vorum við sambandslausir og vissum ekki hverjir höfðu lifað og hverjir höfðu verið gerðir að píslavottum,“ segir Araghchi. „Óvinurinn taldi sig geta lamað okkur með því að ráðast gegn forystunni en mistókst.“ Íran ekki Venesúela Að sögn Araghchi höfðu stjórnvöld búið sig undir árás af þessu tagi og viðbrögðin meðal annars falið í sér að loka Hormússundi. Nágrannaríkin hefðu varað Bandaríkjastjórn við því að gera árásir og freistað þess að útskýra að það yrði ekki eins og að ráðast gegn Venesúela, eins og Bandaríkjamenn höfðu þá þegar gert. Íran byggði á þúsund ára gömlum grunni, Sjía-hugmyndafræði og trúnni á píslarvætti. Stjórnvöld í Íran hefðu varað nágrannaríkin við því að árásum Bandaríkjanna yrði svarað með árásum á innviði þeirra í viðkomandi ríkjum. Ef árásir yrðu gerðar á olíuinnviði Íran, myndu Íranir tryggja að enginn á svæðinu gæti selt olíu. Spurður um valið á milli samningaviðræðna og átaka sagði Araghchi Írani ekki velja átök nema „kostnaðurinn“ við að berjast ekki væri meiri en kostnaður við að berjast.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira