Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. júlí 2026 08:45 Jafnvel þótt að mállíkönin séu langt frá því að vera sjálfstæðar verur, virðast þau stundum hegða sér á óútreiknanlegan hátt. Getty Ted Lieu, þingmaður Demókrataflokksins, og Nathaniel Moran, þingmaður Repúblikanaflokksins, hafa lagt fram frumvarp sem miðar að því að gera stjórnvöldum mögulegt að slökkva á gervigreindarforritum.
Umræða um innleiðingu svokallaðs „kill switch“, það er að segja úrræðis til að gera gervigreindarforrit óvirk, hefur aukist samfara miklum framförum tækninnar. Það sem gerði hins vegar útslagið fyrir þingmennina var tilkynning OpenAI þess efnis að eitt módela fyrirtækisins hefði brotist undan stjórn og ráðist inn í kerfi annars fyrirtækis. Löggjöfin sem þingmennirnir leggja til felur í sér valdheimild til handa öryggisyfirvöldum, sem myndi gera þeim kleift að skipa einkafyrirtæki að „slökkva“ á módeli eða forriti. Þá myndu fyrirtækin verða skikkuð til að hanna öll sín forrit þannig að hægt væri að grípa inn í, „svæfa“ þau eða slökkva á þeim. Mörg gervigreindarfyrirtækjanna hafa þegar skuldbundið sig til að deila upplýsingum með stjórnvöldum og leyfa þeim að prófa forrit áður en þau fara á markað en þau eru ekki skyld til þess að geta slökkt á þeim, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Málið er gríðarstórt og ekki útséð um mögulegar útfærslur en innleiðing gervigreindar í mikilvæga innviði og hin ýmsu opinberu kerfi er þegar hafin út um allan heim, án þess að menn hafi hugað sérstaklega að því hvað gerist ef taka þarf tæknina „úr sambandi“. Frumvarpið nýtur stuðnings stofnana á borð við The AI Policy Network, Americans for Responsible Innovation, ControlAI, AI and National Security Lead og The Alliance for Secure AI.
Bandaríkin Gervigreind Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira