Tólfan fær tíu miða frá KSÍ á hvern leik Íslands Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. janúar 2018 12:59 Tólfan hefur verið áberandi á leikjum Íslands og settu sterkan svip á EM í Frakklandi. visir/vilhelm
Tólfan, stuðningsmannaklúbbur íslenska landsliðsins í knattspyrnu, fær ferð til Rússlands og tíu miða á hvern leik Íslands á HM í Rússlandi í sumar. Þetta staðfesti Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við Vísi í dag. „Það kom beiðni frá Tólfunni og féllst stjórn KSÍ á hana. Grundvallarhugmyndin er því samþykkt og var framkvæmdastjóra falið að útfæra þetta nánar,“ sagði Klara. Hún hefur þegar hitt fulltrúa Tólfunnar vegna þessa og mun funda með þeim áfram á næstu dögum til að fara yfir aðkomu Tólfunnar að HM í Rússlandi. Klara segir þó ljóst að ekki sé eingöngu um skemmtiferð að ræða fyrir stuðningsmennina sem fara út. „Það er ljóst að þeir hafa skyldum að gegna úti en hverjar þær verða nákvæmlega og hvernig þær verða útfærðar á eftir að koma í ljós. Við eigum eftir að fá allar upplýsingar frá mótshöldurum um stuðningsmannasvæði [Fan Zone] og reiknum við með að fá að vita meira um það í febrúar,“ sagði hún. Klara segir að KSÍ muni ekki skipta sér af því hverjir muni fara til Rússlands fyrir hönd Tólfunnar. „Það er eitt af því sem við ætlum að ræða við þá en það liggur fyrir að slík mál þarf Tólfan að klára sínu megin. Við ætlum ekki að stjórna því fyrir þau - þau þekkja það best sjálf.“
Íslenski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Sjá meira