Bein útsending: Fjármálaráðherra kynnir fjárlagafrumvarp næsta árs Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa 14. desember 2017 08:30 Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, mun kynna frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2018 klukkan 9. Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra, mun í dag kynna frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2018. Blaðamannafundur hefst í fjármála-og efnahagsráðuneytinu klukkan 9 og verður Vísir með beina útsendingu þaðan. Fyrsta umræða um frumvarpið fer fram á Alþingi á morgun, föstudag, en þing verður sett í dag klukkan 13:30 og í kvöld flytur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stefnuræðu sína og verða svo umræður um hana í kjölfarið. Frumvarpið er það fyrsta sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna leggur fram en fjárlagafrumvarpið er ekki fyrsta fjárlagafrumvarpið sem lagt er fram fyrir næsta ár. Ríkisstjórn Bjartrar framtíðar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks lagði nefnilega fram sitt frumvarp í haust en aðeins tveimur dögum eftir að það var kynnt sleit Björt framtíð ríkisstjórnarsamstarfinu. Fylgjast má með útsendingunni úr fjármálaráðuneytinu í spilaranum hér fyrir neðan og svo einnig í Vaktinni þar sem greint verður frá því helsta sem fram kemur á blaðamannafundinum.
Bjarni Benediktsson, fjármála-og efnahagsráðherra, mun í dag kynna frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2018. Blaðamannafundur hefst í fjármála-og efnahagsráðuneytinu klukkan 9 og verður Vísir með beina útsendingu þaðan. Fyrsta umræða um frumvarpið fer fram á Alþingi á morgun, föstudag, en þing verður sett í dag klukkan 13:30 og í kvöld flytur Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stefnuræðu sína og verða svo umræður um hana í kjölfarið. Frumvarpið er það fyrsta sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna leggur fram en fjárlagafrumvarpið er ekki fyrsta fjárlagafrumvarpið sem lagt er fram fyrir næsta ár. Ríkisstjórn Bjartrar framtíðar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks lagði nefnilega fram sitt frumvarp í haust en aðeins tveimur dögum eftir að það var kynnt sleit Björt framtíð ríkisstjórnarsamstarfinu. Fylgjast má með útsendingunni úr fjármálaráðuneytinu í spilaranum hér fyrir neðan og svo einnig í Vaktinni þar sem greint verður frá því helsta sem fram kemur á blaðamannafundinum.
Alþingi Fjárlagafrumvarp 2018 Fjárlög Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira