Sérfræðingar vara við drápsvélmennum Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. ágúst 2017 09:09 Elon Musk, einn stofnenda rafbílaframleiðandans Tesla, er á meðal þeirra sem skrifa undir bréfið.
Yfir hundrað sérfræðingar í gervigreind hafa hvatt Sameinuðu þjóðirnar til fyrirbyggjandi aðgerða í þróun á „drápsvélmennum“. Frumkvöðullinn Elon Musk, einn stofnenda rafbílaframleiðandans Tesla, er á meðal þeirra sem skrifa undir bréf varðandi málið. Í opnu bréfi, sem sérfræðingarnir skrifa allir undir, er varað við „þriðju hernaðarbyltingunni.“ Í bréfinu er „sjálfvirkri og banvænni“ tækni líkt við „öskju Pandóru“ og þá er kallað eftir banni á notkun gervigreindar í hernaði, sem sérfræðingarnir kalla drápsvélmenni. „Um leið og þessi tækni hefur verið þróuð mun hún opna fyrir hernaðarátök á mælikvarða sem hefur ekki þekkst áður, og á hraða sem mannfólk hefur ekki burði til að ná utan um,“ skrifa sérfræðingarnir. Þeir vara einnig við því að gervigreindarvopnin geti haft hörmulegar afleiðingar í meðförum hryðjuverkamanna gegn saklausum borgurum. „Við höfum ekki langan tíma til að bregðast við,“ segja sérfræðingarnir enn fremur. Drápsvélmenni er sjálfvirkt vopn sem getur miðað á skotmörk sín og grandað þeim án aðkomu manna, að því er segir í frétt BBC um málið. Þessi vopn hafa enn ekki verið búin til en tækniframfarir hafa fært vísindamenn nær því á síðustu árum. Árið 2015 skrifuðu yfir þúsund sérfræðingar í tæknigeiranum undir sambærilegt bréf þar sem varað var við sjálfvirkum vopnum.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira