Ætla að berjast til sigurs í Afganistan Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. ágúst 2017 06:57 Donald Trump segir að skyndilegt brotthvarf Bandaríkjahers úr Afganistan myndi skilja eftir tómarúm fyrir hryðjuverkamenn. Vísir/AFP
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að hersveitir Bandaríkjanna verði áfram í Afganistan þrátt fyrir fyrirætlanir forsetans um að kalla hermennina heim. Hann segir að skyndilegt brotthvarf Bandaríkjahers úr landinu myndi skilja eftir tómarúm fyrir hryðjuverkamenn, að því er fram kemur í frétt BBC. Forsetinn ávarpaði samkomu í Fort Meyer-herstöðinni í Texas í nótt að íslenskum tíma. Þar sagðist hann einnig hafa ákveðið að framlengja dvöl hersveitanna í Afganistan og að þær myndu „berjast til sigurs“ í von um að forðast mistökin sem hefðu verið gerð í Írak. „Bandaríkin munu vinna með afgönsku ríkisstjórninni, svo lengi sem við fáum að sjá skuldbindingu og framfarir,“ sagði Trump. Í svari Talíbana við yfirlýsingu Trump sagði að Afganistan yrði „enn annar grafreitur“ Bandaríkjanna ef þau kölluðu ekki hersveitir sínar heim.Hermenn Bandaríkjahers hlýddu á ávarp forsetans í Fort Meyer-herstöðinni í Texas í gær.Vísir/AFPÞá beindi Trump spjótum sínum einnig að Pakistan og sagði Bandaríkin ekki lengur myndu umbera það að pakistönsk yfirvöld „skytu skjólhúsi“ yfir öfgamenn. Hann sagði landið hafa „miklu að tapa“ ef það skipaði sér ekki með Bandaríkjunum í lið. Talsmaður pakistanska hersins sagði ekkert hæft í ásökunum Bandaríkjaforseta. Trump neitaði að segja til um hversu margir hermenn til viðbótar, ef einhverjir, yrðu sendir til Afganistan en um 8000 hermenn eru staddir þar um þessar mundir. Þá sagði hann að búast mætti við aukningu í átökum við hryðjuverkasamtök á svæðinu, til að mynda Al-Qaeda og hið svokallaða Íslamska ríki, ISIS. Áður hafði Trump lýst því yfir að hann teldi að kalla ætti hersveitir Bandaríkjanna í Afganistan heim. Átök milli ríkjanna hafa geisað síðan að hryðjuverk voru framin í New York-borg þann 11. september 2001.
Bandaríkin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira