Ætlaði að sprengja banka í loft upp Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. ágúst 2017 22:12 Síðastliðinn laugardag keyrði Varnell sendibifreið að útibúi bankans BancFirst í miðbæ Oklahoma City. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að reyna að sprengja upp banka í Oklahoma City í Oklahoma-ríki í Bandaríkjunum. Ákærði, Jerry Drake Varnell, sagði lögreglumönnum að hann vonaði að aðgerðir hans myndu „örkumla ríkisstjórnina“ og koma af stað „byltingu.“ Að endingu reyndist þó ekki um að ræða alvöru sprengju. Síðastliðinn laugardag keyrði Varnell sendibifreið að útibúi bankans BancFirst í miðbæ Oklahoma City. Varnell taldi bifreiðina vera stolna og enn fremur hlaðna um 450 kílóum af sprengiefnum. Hann lagði bifreiðinni og reyndi að því búnu að koma sprengjunni af stað með því að hringja í tiltekið símanúmer, sem hann gerði ráð fyrir að væri tengt sprengjunni. Varnell hafði einnig tekið upp skilaboð sem hann ætlaði að hlaða á netið eftir árásina. Hann tjáði heimildarmanni lögreglunnar að mikilvægt væri að hafa tilbúna yfirlýsingu til að setja á samfélagsmiðla svo önnur hryðjuverkasamtök myndu ekki eigna sér árásina. Embættismenn hjá Bandarísku alríkislögreglunni, FBI, sögðu sprengibúnaðinn alltaf hafa verið óvirkan og engin hætta hafi steðjað að almenningi vegna hans. Varner hefur verið ákærður fyrir tilraun til að nota sprengiefni til að eyðileggja byggingu. Hann stendur nú frammi fyrir allt að 20 ára fangelsisvist verði hann dæmdur sekur.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira