Sagði hvíta þjóðernissinna minnipokamenn og „samansafn af trúðum“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. ágúst 2017 10:24 Framtíð Steve Bannon, eins helsta ráðgjafa Donalds Trump Bandaríkjaforseta, er óljós. Vísir/AFP
Steve Bannon, einn helsti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sagði hvíta þjóðernissinna vera „samansafn af trúðum“ í viðtali við The American Prospect sem kom út í gær. Ummælin eru höfð eftir Bannon í kjölfar óeirðanna í Virginíu um síðustu helgi þar sem til átaka kom milli hvítra þjóðernissinna og gagnmótmælenda. Bannon stýrði eitt sinn Breitbart News, fréttamiðli sem kenndur hefur við bandarísku stjórnmálahreyfinguna „hitt hægrið“ (e. alt-right). Breitbart hefur gjarnan verið talinn eitt helsta málgagn hvítra þjóðernissinna og gegndi enn fremur lykilhlutverki í sigri Trump í forsetakosningunum í fyrra. „Þjóðernishyggja sem byggir á kynþáttum, þeir eru minnipokamenn,“ sagði Bannon um þjóðernissinnanna sem stóðu að óeirðunum um helgina. „Þetta er jaðarafl. Ég held að fjölmiðlar geri of mikið úr þessu, og við verðum að hjálpast að við að jafna þá við jörðu, þú veist, hjálpa til við að jafna þá enn frekar við jörðu.“ „Þessir gaurar eru samansafn af trúðum,“ bætti Bannon við.Örlög Bannon enn óljós Framtíð Bannon í Hvíta húsinu er „óljós“, að því er Trump staðfesti á óvenjulegum blaðamannafundi í New York-borg í vikunni. „Við sjáum til,“ sagði Trump enn fremur um áframhaldandi veru Bannon í Hvíta húsinu. Fréttir herma að Trump hafi verið hvattur til að reka Bannon, sem hefur haft greiðan aðgang að forsetanum í ráðgjafastarfi sínu. Þá hefur áhrifa hans gætt í stórum ákvörðunum ríkisstjórnarinnar, til að mynda þeirri ákvörðun Hvíta hússins að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu, að því er fram kemur í frétt BBC. Þá hefur Trump verið harðlega gagnrýndur fyrir að kenna báðum fylkingum, þjóðernissinnum og gagnmótmælendum, um óeirðirnar í Charlottesville í Virginíu. Þar kom til átaka um helgina er hvítir þjóðernissinnar mótmæltu því að stytta af Robert E. Lee, hershöfðingja Suðurríkjanna í þrælastríði Bandaríkjanna, yrði fjarlægð.Sjá einnig: Tekist á um tákn sundraðrar fortíðar Hin 32 ára Heather Heyer lést í átökunum, er ökumaður sem talinn er aðhyllast hugmyndafræði þjóðernissinna, keyrði á hana. Minningarathöfn um Heyer var haldin í Charlottesville í gær. Í viðtalinu við The American Prospect snerti Bannon einnig á málefnum Norður-Kóreu, Kína og inannbúðarmálum í Hvíta húsinu. Hann sagði meðal annars að engin hernaðarlausn væri til við hinni norður-kóresku kjarnorkuógn og að hann ætti í innanhúsbardaga við ríkisstjórnina varðandi viðskiptastefnu Bandaríkjanna gagnvart Kína.
Tengdar fréttir Lítið sem ekkert gert til að græða sár Repúblikana Gjáin á milli Bandaríkjaforseta og samflokksmanna hans heldur áfram að breikka. Repúblikanar reiðast forsetanum fyrir að segja að öfgaþjóðernissinnar beri ekki fulla ábyrgð á óeirðunum í Charlottesville. 17. ágúst 2017 06:00 Repúblikanar andæfa fordómum og Trump forseta Margir háttsettir repúblikanar hafa gagnrýnt furðuleg ummæli Donalds Trump forseta um óeirðirnar í Charlottesville í gær. Helstu leiðtogar þeirra hafa þó hikað við að beina spjótum sínum beint að forsetanum. 16. ágúst 2017 10:29 Myndasyrpa frá átökunum í Charlottesville Þegar hópar þjóðernissinna sem komu saman í Charlottesville í Bandaríkjunum mættu gagnmótmælendum um helgina kom fljótt til átaka þeirra á milli. 14. ágúst 2017 11:00 Trump sagði óeirðirnar í Virginíu báðum að kenna á stórfurðulegum blaðamannafundi Átök helgarinnar urðu helsta umræðuefni blaðamannafundar, sem átti að snúast um skipulag innan ríkisstjórnarinnar, í anddyri Trump-turns í New York-borg í dag. 15. ágúst 2017 22:00 Fox deildi myndbandi um hvernig ætti að keyra á mótmælendur Draumórar um að aka niður mótmælendur hafa verið áberandi á hægri væng bandarískra stjórnmála frá því að mótmæli gegn lögregluofbeldi gegn svörtum færðust í aukana fyrir nokkrum árum. 16. ágúst 2017 11:26 Hvítu þjóðernissinnarnir í Charlottesville: Svartklæddir, vopnaðir og heilsuðu að sið nasista Fánar gömlu Suðurríkjanna voru áberandi í hópi hvítra þjóðernissinna sem fylktu liði í Charlottesville í Bandaríkjunum í gær. Þeir hrópuðu rasísk slagorð og sumir heilsuðu að nasistasið og báru fána með hakakrossinum. 13. ágúst 2017 11:43 „Rasismi er af hinu illa“ Donald Trump Bandaríkjaforseti tjáði sig um átök þjóðernissinna og gagnmótmælenda í Virginíu-ríki um helgina á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag. 14. ágúst 2017 18:40 Varg- og vígöld í Virginíu-ríki Hópi þjóðernissinna og andstæðinga þeirra laust saman í Charlottesville í Virginíu um helgina. Neyðarástandi lýst yfir í borginni. Minnst einn lést. 14. ágúst 2017 06:00 Fyrrverandi kennari ökumannsins segir hann dá Hitler James Alex Fields hefur verið ákærður, meðal annars fyrir morð, fyrir að aka bíl sínum inn í hóp fólks sem var að mótmæla samkomu þjóðernissinna vegna fyrirhugaðs niðurrifs styttu af Robert E. Lee, hershöfðinga Suðurríkjanna í þrælastríði Bandaríkjanna. 14. ágúst 2017 07:00 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Lítið sem ekkert gert til að græða sár Repúblikana Gjáin á milli Bandaríkjaforseta og samflokksmanna hans heldur áfram að breikka. Repúblikanar reiðast forsetanum fyrir að segja að öfgaþjóðernissinnar beri ekki fulla ábyrgð á óeirðunum í Charlottesville. 17. ágúst 2017 06:00
Repúblikanar andæfa fordómum og Trump forseta Margir háttsettir repúblikanar hafa gagnrýnt furðuleg ummæli Donalds Trump forseta um óeirðirnar í Charlottesville í gær. Helstu leiðtogar þeirra hafa þó hikað við að beina spjótum sínum beint að forsetanum. 16. ágúst 2017 10:29
Myndasyrpa frá átökunum í Charlottesville Þegar hópar þjóðernissinna sem komu saman í Charlottesville í Bandaríkjunum mættu gagnmótmælendum um helgina kom fljótt til átaka þeirra á milli. 14. ágúst 2017 11:00
Trump sagði óeirðirnar í Virginíu báðum að kenna á stórfurðulegum blaðamannafundi Átök helgarinnar urðu helsta umræðuefni blaðamannafundar, sem átti að snúast um skipulag innan ríkisstjórnarinnar, í anddyri Trump-turns í New York-borg í dag. 15. ágúst 2017 22:00
Fox deildi myndbandi um hvernig ætti að keyra á mótmælendur Draumórar um að aka niður mótmælendur hafa verið áberandi á hægri væng bandarískra stjórnmála frá því að mótmæli gegn lögregluofbeldi gegn svörtum færðust í aukana fyrir nokkrum árum. 16. ágúst 2017 11:26
Hvítu þjóðernissinnarnir í Charlottesville: Svartklæddir, vopnaðir og heilsuðu að sið nasista Fánar gömlu Suðurríkjanna voru áberandi í hópi hvítra þjóðernissinna sem fylktu liði í Charlottesville í Bandaríkjunum í gær. Þeir hrópuðu rasísk slagorð og sumir heilsuðu að nasistasið og báru fána með hakakrossinum. 13. ágúst 2017 11:43
„Rasismi er af hinu illa“ Donald Trump Bandaríkjaforseti tjáði sig um átök þjóðernissinna og gagnmótmælenda í Virginíu-ríki um helgina á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag. 14. ágúst 2017 18:40
Varg- og vígöld í Virginíu-ríki Hópi þjóðernissinna og andstæðinga þeirra laust saman í Charlottesville í Virginíu um helgina. Neyðarástandi lýst yfir í borginni. Minnst einn lést. 14. ágúst 2017 06:00
Fyrrverandi kennari ökumannsins segir hann dá Hitler James Alex Fields hefur verið ákærður, meðal annars fyrir morð, fyrir að aka bíl sínum inn í hóp fólks sem var að mótmæla samkomu þjóðernissinna vegna fyrirhugaðs niðurrifs styttu af Robert E. Lee, hershöfðinga Suðurríkjanna í þrælastríði Bandaríkjanna. 14. ágúst 2017 07:00