Ein besta sundkona Íslands glímir við bakmeiðsli | Bara konur á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2017 10:00 Eygló Ósk Gústafsdóttir. Vísir/Anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir verður ekki meðal keppanda á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer í Búdapest 23. til 30. júlí næstkomandi. Sundsamband Íslands sendir þrjá keppendur á Heimsmeistaramótið í sundi en Eygló Ósk getur ekki verið með vegna meiðsla. Allir keppendur Íslands að þessu sinni eru konur eða þær Bryndís Rún Hansen, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir. Til stóð að þau Eygló Ósk Gústafsdóttir og Anton Sveinn Mckee tækju einnig þátt í mótinu, en af því getur ekki orðið þar sem Eygló Ósk á við bakmeiðsli að stríða, sem hafa ágerst, þannig að það var tekin ákvörðun í samráði við lækni og sjúkraþjálfara að hún sleppti mótinu í ár og hvíldi vel fyrir næsta tímabil. Þetta kemur fram á heimasíðu Sundsambands Íslands. Það er von allra að Eygló Ósk nái sér að fullu og sundsambandið vonast til þess að hún verði komin til keppni þegar á EM25 í desember. Anton Sveinn tók sér í vor hlé frá sundiðkun um stundarsakir til að undirbúa framhaldsnám sitt í Bandaríkjunum. Bryndís Rún Hansen keppir í 50 metra og 100 metra flugsundi og 100 metra skriðsundi, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir keppir í 50 metra skriðsundi og 50 metra baksundi og Hrafnhildur Lúthersdóttir keppir í 50 metra og 100 metra bringusundi. Þau Jacky Pellerin landsliðsþjálfari, Unnur Sædís Jónsdóttir sjúkraþjálfari og Magnús Tryggvason formaður landsliðsnefndar SSÍ munu fylgja þeim. Á sama tíma og HM fer fram í Búdapest, er EYOF, Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar, haldin í Györ í Ungverjalandi. Þar keppa í sundi fyrir Íslands hönd þeir Brynjólfur Óli Karlsson í 200 metra og 100 metra baksundi, Patrik Viggó Vilbergsson í 400 metra og 1500 metra skriðsundi og 400 metra fjórsundi og Viktor Forafonov í 100 metra, 200 metra og 400 metra skriðsundi og 200 metra flugsundi. Með þeim verður Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir þjálfari. Þeir Hörður J. Oddfríðarson formaður SSÍ og Jón Hjaltason varaformaður SSÍ munu sækja ársþing FINA sem verður laugardaginn 22. júlí og fylgja síðan keppendum Íslands eftir á HM50 og EYOF.
Sund Tengdar fréttir Hrafnhildur, Eygló Ósk og Ingibjörg Kristín einokuðu topplista ÍM50 Sundkonurnar Hrafnhildur Lúthersdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir náðu bestum árangri á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug sem fór fram í Laugardalssundlauginni um helgina. 10. apríl 2017 15:30 Lét hinar halda að þær þyrftu ekki að hræðast mig Það var rosalega gaman að hitta á sundkonuna Eygló Ósk Gústafsdóttur eftir undanúrslitin í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó í fyrrinótt því þessi 21 árs gamli Ægiringur gat örugglega ekki verið glaðari þegar hún hitti undirritaðan. 13. ágúst 2016 06:00 Eygló Ósk: Mjög erfitt en líka ótrúlega gaman Eygló Ósk Gústafsdóttir varð áttunda í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt en þetta er næstbesti árangur íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum. 13. ágúst 2016 01:43 Eygló Ósk setti tvö met í sama sundi á HM | Bryndís í 29. sæti Eygló Ósk Gústafsdóttir hjálpaði ekki aðeins íslensku boðssundssveitinni að setja landsmet í 4 x 50 fjórsundi á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag heldur setti hún einnig sjálf Íslandsmet í sundinu. 7. desember 2016 16:07 Eygló Ósk horfir til framtíðar: Set markið ennþá hærra á næstu leikum Eygló Ósk Gústafsdóttir náði í nótt næstbesta árangri íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum en eftir sundið var hún strax farin að tala um að ná lengra á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020. 13. ágúst 2016 01:54 Eygló kórónaði daginn sinn á HM í Windsor með þriðja metinu Uppskeran hjá Íþróttamanni ársins, Eygló Ósk Gústafsdóttur, á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag var afar glæsileg. 7. desember 2016 17:14 Hrafnhildur og Eygló náðu lágmörkum fyrir HM í Búdapest Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir náði í dag lágmörkum fyrir heimsmeistaramótið í sundi í Búdapest í sumar. 19. mars 2017 16:18 Mest lesið Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Enski boltinn Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Körfubolti Fleiri fréttir Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli UFC meistari segir frá fjárkúgun og „fölskum ásökunum“ Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Snorri kynnir EM-fara í vikunni Portúgal í stað Hollands í Formúlu 1 Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Mariah Carey skemmtir á opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna Moyes ældi alla leiðina til Eyja EM ekki í hættu Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Sjá meira
Hrafnhildur, Eygló Ósk og Ingibjörg Kristín einokuðu topplista ÍM50 Sundkonurnar Hrafnhildur Lúthersdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir náðu bestum árangri á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug sem fór fram í Laugardalssundlauginni um helgina. 10. apríl 2017 15:30
Lét hinar halda að þær þyrftu ekki að hræðast mig Það var rosalega gaman að hitta á sundkonuna Eygló Ósk Gústafsdóttur eftir undanúrslitin í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó í fyrrinótt því þessi 21 árs gamli Ægiringur gat örugglega ekki verið glaðari þegar hún hitti undirritaðan. 13. ágúst 2016 06:00
Eygló Ósk: Mjög erfitt en líka ótrúlega gaman Eygló Ósk Gústafsdóttir varð áttunda í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt en þetta er næstbesti árangur íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum. 13. ágúst 2016 01:43
Eygló Ósk setti tvö met í sama sundi á HM | Bryndís í 29. sæti Eygló Ósk Gústafsdóttir hjálpaði ekki aðeins íslensku boðssundssveitinni að setja landsmet í 4 x 50 fjórsundi á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag heldur setti hún einnig sjálf Íslandsmet í sundinu. 7. desember 2016 16:07
Eygló Ósk horfir til framtíðar: Set markið ennþá hærra á næstu leikum Eygló Ósk Gústafsdóttir náði í nótt næstbesta árangri íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum en eftir sundið var hún strax farin að tala um að ná lengra á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020. 13. ágúst 2016 01:54
Eygló kórónaði daginn sinn á HM í Windsor með þriðja metinu Uppskeran hjá Íþróttamanni ársins, Eygló Ósk Gústafsdóttur, á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag var afar glæsileg. 7. desember 2016 17:14
Hrafnhildur og Eygló náðu lágmörkum fyrir HM í Búdapest Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir náði í dag lágmörkum fyrir heimsmeistaramótið í sundi í Búdapest í sumar. 19. mars 2017 16:18