Trump í Póllandi: Spyr hvort Vesturlönd búi yfir viljanum til að lifa af Atli Ísleifsson skrifar 6. júlí 2017 09:59 Donald Trump Bandaríkjaforseti fundaði með Andrzej Duda Póllandsforseta í morgun. Vísir/AFP
Donald Trump Bandaríkjaforseti mun segja að framtíð vestrænnar siðmenningar sé í húfi í ræðu sinni sem hann hyggst flytja í pólsku höfuðborginni Varsjá síðar í dag. Brot úr ræðunni hafa þegar verið send á fjölmiðla, en hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Trump mun þar lýsa Póllandi sem landi sem sé reiðubúið að verja siðmenninguna en forsetinn mun einnig vara við þeirri ógn sem stafar af hryðjuverka- og öfgamönnum. Ríkisstjórn Póllands deilir viðhorfum Trump þegar kemur að innflytjendamálum og fullveldi. Trump kom til Póllands í gærkvöldi en að heimsókn lokinni fer hann á leiðtogafund G20-ríkjanna sem fram fer í Hamborg í Þýskalandi um helgina. „Reynsla Póllands minnir okkur á að það hvílir ekki bara á þeim leiðum sem í boði eru að verja Vestrið, heldur einnig á vilja Vesturlandabúa að verða yfirsterkari,“ segir í ræðunni „Grundvallarspurning okkar tíma er hvort Vesturlönd búi yfir viljanum til að lifa af.“ Trump mun flytja ræðuna við minnisvarða um Varsjár-uppreisnina árið 1944 á Krasinski-torgi. Þar mun hann einnig ítreka stuðning Bandaríkjanna við ríki Austur-Evrópu. Trump mun eiga tvíhliða fund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Hamborg á morgun, en þetta verður í fyrsta sinn sem þeir funda saman tveir.
Donald Trump Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira