Tóku hundruð af lífi og grófu í fjöldagröf við Mosul Samúel Karl Ólason skrifar 22. mars 2017 12:00 Af þeim tugum fjöldagrafa sem samtökin hafa skilið eftir sig í Írak og í Sýrlandi er þessi mögulega sú stærsta. Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins myrtu hundruð manna og vörpuðu ofan í holu nærri Mosul. Fangar, hermenn og konur voru meðal þeirra sem tekin voru af lífi og varpað ofan í fjöldagröfina. Þá var jarðsprengjum komið fyrir í og við gröfina þegar vígamennirnir voru reknir þaðan í febrúar. Af þeim tugum fjöldagrafa sem samtökin hafa skilið eftir sig í Írak og í Sýrlandi er þessi mögulega sú stærsta, en um er að ræða náttúrulega holu, svokallaða sinkhole, nærri Khafsa, skammt frá Mosul. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch ræddu við menn sem urðu vitni að ódæðum vígamannanna.Ómögulegt er að segja til um hve margir voru teknir af lífi og varpað ofan í holuna, en vatn rennur um botn hennar og því gæti orðið erfitt að finna og grafa upp allar líkamsleifar. Þá hjálpa sprengjurnar ekki til. Blaðamaður og þrír hermenn létu lífið vegna einnar slíkrar sprengju þann 25. febrúar. Eins og áður segir hafa tugir fjöldagrafa fundist á svæðinu, en ekki er hægt að rannsaka þær að svo stöddu. HRW kalla eftir því að yfirvöld í Írak girði í kringum fjöldagrafirnar svo þær verði látnar í friði þar til sérfræðingar taka þær til skoðunnar og hægt verður að aftengja sprengjurnar sem þar má finna. Vígamenn ISIS fylltu upp í holuna um vorið 2015, en heimamenn höfðu þá verið að kvarta undan lykt frá henni. Heimamenn sögðu HRW að mögulega hefðu þúsundum líka verið varpað ofan í holuna.
Mið-Austurlönd Sýrland Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira