Kristen í heimsókn í Hólminum og Aaryn sló næstum því metið hennar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2017 15:30 Kristen McCarthy og Aaryn Ellenberg Vísir/Samett/Stefán og Daníel Þór
Aaryn Ellenberg átti stórleik þegar Snæfell komst í 1-0 í undanúrslitaeinvígi sínu í úrslitakeppni Domino´s deildar kvenna í Stykkishólmi í gær. Aaryn Ellenberg var aðeins einu stigi frá því að jafna stigamet Kristen McCarthy sem eru sú sem hefur skorað mest fyrir Snæfellsliðið í einum leik í úrslitakeppni. Svo skemmtilega vill til að handhafi stigamets Snæfells í úrslitakeppninni, umrædd Kristen McCarthy, var einmitt á leiknum í Hólminum í gærkvöldi. Það hafði greinilega mjög góð áhrif á Aaryn Ellenberg sem átti sinn besta leik með Snæfellsliðinu. Aaryn Ellenberg skoraði 42 stig á 38 mínútum í leiknum auk þess að taka 14 fráköst og gefa 6 stoðsendingar. Ellenberg hitti úr 14 af 22 skotum sínum (64 prósent) þar af 4 af 5 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.Sjá einnig:Kristen McCarthy: Ég elska það að spila á Íslandi Kristen McCarthy hafði skorað 43 stig í öðrum leik Snæfells og Keflavíkur í lokaúrslitunum 2015. McCarthy hitti úr 19 af 30 skotum sínum í leiknum (63 prósent). McCarthy var frábær í þessari úrslitakeppni fyrir tveimur árum og var með 32,6 stig, 11,6 fráköst og 4,4 stolna bolta að meðaltali í leik. Kristen McCarthy hefur spilað í Rúmeníu og Þýskalandi síðan hún varð Íslandsmeistari með Snæfelli vorið 2015 en hefur alltaf haldið góðu sambandi við Hólmara og heimsótt Stykkishólm reglulega.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira