Þvertaka fyrir að hafa gert árás á mosku Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2017 23:01 Árásir voru gerðar á húsið, bæði úr orrustuþotum og með drónum. Vísir/AFP
Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna þvertaka fyrir að hafa gert árás á mosku í Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi árás verið gerð á samkomustað al-Qaeda, við hlið moskunnar, og tugir vígamanna hafi verið felldir. Aðgerðarsinnar í Sýrlandi segja um 40 manns hafa látið lífið og þar af hafi flestir verið almennir borgarar. Aðgerðarsinnarnir segja árásina hafa verið gerða á meðan kvöldbænir stóðu yfir og að fjöldi manns hafi verið í moskunni, sem árásin er sögð hafa verið gerð á. Talsmaður hernaðaryfirvalda Bandaríkjanna Josh Jacques, segir þá hvorki hafa miðað á né hitt mosku. Þeir hafi gert árás á hús hinu megin við götuna. Þá segir talsmaður Pentagon að bænirnar hafi verið búnar og að fyrstu niðurstöður þeirra gefi ekki í skyn að almennir borgarar hafi fallið. Þó segjast þeir vera tilbúnir til að rannsaka allar trúverðugar ábendingar sem berast til þeirra. Hins vegar hafi þeim ekki borist nein slík ábending, enn sem komið er. Rannsóknarsamtökin Bellingcat segja hins vegar að myndir sem hernaðaryfirvöld birtu máli sínu til stuðnings sýni að árásin hafi í raun verið gerð á moskuna. Á vef þeirra segir að Bandaríkjunum hafi verið bent á það og þeir bíði nú svara. Bandaríkin segja háttsetta meðlimi al-Qaeda hafa verið í samkomuhúsinu þegar árásin var gerð, samkvæmt AP fréttaveitunni. Hins vegar sé enn verið að meta áhrif árásarinnar. Árásir voru gerðar á húsið, bæði úr orrustuþotum og með drónum, en leifar Hellfire flugskeytis fundust á vettvangi árásarinnar.
Mið-Austurlönd Sýrland Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira