Tekur sér frí frá UFC til þess að slökkva elda Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2017 16:00 Story þjarmar hér að Gunnari Nelson í Stokkhólmi. vísir/getty
Gunnar Nelson hefur aðeins tapað tvisvar í UFC og annar þeirra sem hefur unnið Gunnar, Rick Story, er farinn í frí frá UFC og ætlar að gerast slökkviliðsmaður. Hinn 32 ára gamli Story er ósáttur við sinn hlut af UFC-kökunni en honum finnst sneiðarnar ansi litlar eftir að hafa gefið UFC allt sem hann á síðustu átta ár. Hann fékk 4,5 milljónir króna fyrir síðasta bardaga á meðan menn á svipuðum stað á styrkleikalista UFC, og með minni reynslu, eru að fá meira borgað. „Ég hef verið þarna lengi og gefið allt sem ég á. Það er svekkjandi að horfa á reynsluminni menn fá stærri sneið af kökunni. Þá tapar maður metnaðinum. Af hverju að leggja sig allan fram fyrir fyrirtæki sem fer svona illa með mig,“ spyr Story sem er að læra að verða slökkviliðsmaður og ætlar sér að slökkva elda næstu misseri á meðan hann tekur sér frí. „Ég er alls ekki ómissandi hjá UFC. Það eru viðskipti og ég skil það. Ég ætla ekki að fara að væla yfir því en aðeins sætta mig við það og segja hlutina eins og þeir eru. Mér er ekki illa við UFC sem hefur margsannað að allt snýst um að þeir fái peninga.“ Story fór nýlega í erfiða tannaðgerð og getur því ekki keppt á næstunni en hann ætlar að taka sér lengra frí frá UFC. Keppir líklega ekkert á þessu ári. Hann er nýfallinn af styrkleikalista UFC í veltivigtinni.
MMA Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira