Tími til endurskoðunar kjarasamninga rennur út í dag Heimir Már Pétursson skrifar 28. febrúar 2017 13:06 Samninganefnd Alþýðusambandsins kom saman til fundar í morgun til að ræða hvort framlengja eigi um eitt hundrað gildandi kjarasamninga eða hvort segja eigi samningunum upp. Vísir/GVA
Samninganefnd Alþýðusambandsins kom saman til fundar í morgun til að ræða hvort framlengja eigi um eitt hundrað gildandi kjarasamninga eða hvort segja eigi samningunum upp. Frestur aðila vinnumarkaðarins til að ljúka endurskoðun á forsendum samninganna rennur út í dag. Samkvæmt dagskrá Alþingis í dag á að halda áfram fyrstu umræðu um áfengisfrumvarpið að loknum hálftíma umræðum um störf þingsins sem hefst klukkan hálf tvö. Ekki tókst að ljúka umræðunni um frumvarpið um einkavæðingu áfengissölu fyrir helgi og enn eru tíu þingmenn á mælendaskrá. Þingmenn sem fréttastofa hefur rætt við reikna frekar með að umræðunni um frumvarpið ljúki í dag en næst á dagskránni er síðan frumvarp þingflokks Pírata um kjararáð. Samkvæmt frumvarpinu yrði kjararáði gert að taka fyrir á ný ákvörðun um kjör æðstu embættismanna og miða úrskurð sinn við þróun á almennum vinnumarkaði. Jón Þór Ólafsson fyrsti flutningsmaður frumvarpsins segir hins vegar seint í rassinn gripið þar sem forsendunefnd aðila vinnumarkaðarins muni ljúka sinni yfirferð um endurnýjun kjarasamninga í dag. „Við reyndum að fá málið á dagskrá í síðustu viku. Settum það síðan í forgang þannig að við gætum fengið það á dagskrá. En eins og ég segi, þeir klára sína umræðu (í dag) hvort segja eigi upp kjarasamningum,“ segir Jón Þór.Forsendunefnd aðila vinnumarkaðarins kom saman til fundar í morgun og mun tilkynna á fréttamannafundi klukkan 16:00 hvort samningum á almennum markaði verði sagt upp eða ekki. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sagði í Víglínunni á laugardag að forsendubrestur væri í kjarasamningum á almennum markaði vegna launahækkana æðstu embættismanna umfram það sem gerst hefði á almennum vinnumarkaði. Það breytti litlu þótt ákveðið hafi verið að lækka aukagreiðslur til þingmanna um 150 þúsund krónur á mánuði. Ef ákvörðun kjararáðs verði ekki tekin til baka séu ekki forsendur til að halda launastefnu SALEK samkomulagsins áfram. „Okkar mat er þetta; gott og vel eigum við þá ekki bara að framlengja kjarasamningana til febrúar á næsta ári. Þá er aftur endurskoðun. Og leyfa þá ríkinu að vinna úr þessari launastefnu sem kjararáð mótaði og þeir eru að verja.“Þú ert að segja; réttum þeim þennan beiska bikar? „Bikarinn er þeirra. Hann er á borði þeirra. Við ætlum ekki að vera fyrst í samningalotunni í vor,“ sagði Gylfi í Víglínunni. En fram undan á þessu ári eru erfiðir kjarasamningar við lækna, skurðlækna, kennara og þá rennur úrskurður um kjör félaga í BHM út á árinu. Allt eru þetta samningar við ríki og sveitarfélög sem eru hinn beiski bikar sem Gylfi segir nú vera hjá hinu opinbera. Enda hafi hið opinbera tekið forystuna í kjaramálum allt frá árinu 2014 og ætli greinilega að halda því áfram á þessu ári. Hins vegar myndi frumvarp Pírata um kjararáð hjálpa ef það næði fram að ganga á Alþingi. Jón Þór segir Alþingi hafa það í höndum sér að setja kjararáðsfrumvarpið fram fyrir áfengisfrumvarpið og afgreiða frumvarpið í dag. „Það er eitthvað sem Alþingi hefur ítrekað gert þegar kemur að því að setja lög á verkföll fólks. Ef að er eitthvað mjög aðkallandi. Þetta er mjög aðkallandi Tímafresturinn er í kvöld. Þannig að ef raunverulegur vilji væri á Alþingi væri hægt að klára þetta í dag,“ segir Jón Þór.Muntu gera dagskrártillögu um það þegar þingfundur hefst í dag (kl. 13:30)? „Já, ég geri það bara. Ég gerði það náttúrlega þarna fyrir helgi, henni var hafnað. Þannig að ég held að vilji þingsins sé mjög skýr í þessu og hvernig dagskránni er stillt upp í dag. En já, ég held að þetta sé góð hugmynd, að ég setji fram dagskrártillögu samt sem áður þannig að hann komi bara aftur skýrt fram,“ segir Jón Þór Ólafsson.
Kjaramál Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira