Viðskipti innlent

Ás­laug Arna í gervi­greindina hjá CCP

Árni Sæberg skrifar
Áslaug Arna sat lengi á þingi.
Áslaug Arna sat lengi á þingi. Vísir/Vilhelm

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hefur verið ráðin til íslenska tæknifyrirtækisins Fenris creations, sem hét áður CCP. Þar verður hún yfirmaður á sviði sem tengist gervigreind, með starfstöð í London.

Þetta herma heimildir Vísis.

Áslaug Arna tilkynnti nokkuð óvænt þann 3. júní síðastliðinn að hún hefði ákveðið að láta af þingmennsku. Hún hafði setið á þingi frá árinu 2016 og gengt embætti dómsmálaráðherra, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Margir hafa velt því fyrir sér hvað tekur við eftir langan feril hennar í pólitík en hún hafði áður tekið sér nokkurra mánaða leyfi til þess að leggja stund á MPA-nám (e. Master in Public Administration in Global Leadership) við Columbia-háskóla í New York.

Heimildir Vísis herma að hún hafi ráðið sig til Fenris creations í starf sem nefnist Senior director AI partnerships á ensku. Það gæti útlagst á íslensku framkvæmdastjóri samstarfs á sviði gervigreindar.

Fenris creations var stofnað á Íslandi árið 1997 undir heitinu CCP Games. Nafni félagsins var breytt í maí síðastliðnum eftir að stjórnendur þess keyptu fyrirtækið aftur af fyrirtæki frá Suður-Kóreu en það var gert með aðkomu Aldir ehf. Omega ehf. og tæknirisans Google.

Fyrirtækið er nú að mestu í eigu Íslendinga og höfuðstöðvar þess eru í Reykjavík en það rekur einnig starfsstöðvar í London og Shanghai. Samkvæmt heimildum Vísis Áslaug Arna starfa á skrifstofunni í London.


Tengdar fréttir

Hefur þegar fengið starfstilboð

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir að það að ganga í gegnum erfiðleika hafi mótað hana mest. Áslaug gengur stolt frá störfum sínum á þingi en segist munu sakna þess að takast á um framtíð landsins. Starfstilboð eru þegar farin að berast Áslaugu sem er nýkomin heim úr meistaranámi í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×