Viðskipti innlent

Blæs á full­yrðingar um forsendubrest og segir kaup­mátt hafa aukist

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þorsteinn segir kaupmátt hafa aukist meira en vænst var.
Þorsteinn segir kaupmátt hafa aukist meira en vænst var. Vísir/Magnús Hlynur

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vísar því á bug að forsendur kjarasamninga séu brostnar en kallar eftir lægri álögum á fyrirtæki og einföldun regluverks til að sporna gegn samdrætti.

„Á sama tíma og hagkerfið er að kólna hratt og atvinnuleysi eykst hótar forysta verkalýðshreyfingarinnar uppsögn kjarasamninga vegna forsendubrests. Vissulega hefur verðbólga mælst meiri en væntingar stóðu til en hið sama má segja um launahækkanir og þar með kaupmátt,“ segir Þorsteinn í færslu á Facebook.

Þorsteinn vísar þarna til þess að Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og fleiri formenn verkalýðsfélaga hafa sagt ársverðbólgu munu mælast svo háa í ágúst að forsendur kjarasamninga muni bresta. Allt hafi hækkað nema laun en hvorki stjórnvöld né fyrirtækin brugðist við áköllum verkalýðshreyfingarinnar eftir aðgerðum.

Þorsteinn segir hins vegar að kaupmáttaraukning fyrstu þriggja ára samningstímans hafi farið fram úr væntingum. Hagvöxtur hafi hins vegar reynst mun minni og almenn staða hagkerfisins mun veikari og þannig hafi svigrúm atvinnulífsins til launahækkana reynst minna en vænst var.

„Við þessar kringumstæður er erfitt að sjá hvers vegna kallað sé eftir stórfelldum aðgerðum af hálfu stjórnvalda og/eða auknum launahækkunum af hálfu atvinnulífsins til að bæta launafólki upp forsendubrest á sama tíma og kaupmáttur hefur vaxið meira en vænst var,“ segir Þorsteinn.

„Við þessar kringumstæður er hins vegar brýnt að stjórnvöld grípi til markvissra aðgerða til að sporna gegn frekari samdrætti í hagkerfinu og vega á móti versnandi samkeppnisstöðu í atvinnulífinu almennt. Lægri álögur á fyrirtæki, einföldun regluverks og aukinn kraftur í innviðauppbyggingu væru skynsamleg viðbrögð við þeirri stöðu sem er í hagkerfinu núna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×