Uppreisn í Mosul barin niður af ISIS Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2016 14:58 Uppreisnarmennirnir eru sagðir hafa verið vígamenn ISIS, ekki íbúar Mosul. Er það sagt vera til marks um að samtökin séu að missa stjórn á vígamönnum sínum. Myndin er frá sumrinu 2014 þegar ISIS lagði undir sig stóran hluta Írak. Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins hafa barið niður tilraun til uppreisnar í borginni Mosul í Írak. Einn af foringjum samtakanna í borginni ætlaði að skipta um lið og hjálpa stjórnvöldum að frelsa borgina. Reuters fréttaveitan segir frá því að 58 hafi verið teknir af lífi fyrir aðild að byltingunni eftir að yfirstjórn borgarinnar komst á snoðir um hana í síðustu viku. Samkvæmt heimildum Reuters var fólkinu drekkt og þau grafin í fjöldagröf fyrir utan borgina. Þá hefur fréttaveitan heimildir fyrir því að leiðtogi uppreisnarmannanna hafi verið aðstoðarmaður Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga ISIS. Upp komst um ráðabruggið þegar skilaboð um færslu vopna fannst á síma eins af uppreisnarmönnunum. Þetta voru meðlimir ISIS sem lögðu á ráðin. Mosul er eitt af síðustu vígum ISIS í Írak og það stærsta. Fyrir sumarið 2014 bjuggu um tvær milljónir manna þar. Stjórnarher Íraks vinnur nú að því að umkringja borgina en búist er við því að baráttan um Mosul verði einhver stærsta orrusta sem hefur verið háð í landinu frá innrásinni 2003. Markmið uppreisnarmannanna var að veikja varnir borgarinnar fyrir þá orrustu. Embættismenn í Írak segja að orrustan gæti hafist í þessum mánuði. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við því að orrustan gæti skapað einhverja stærstu mannréttindakrísu landsins og allt að milljón manns gæti endað á vergangi.
Mið-Austurlönd Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira