Jón Daði: Uppiskroppa með lýsingarorð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2016 23:12 Jón Daði lagði upp sigurmarkið. vísir/epa
Jón Daði Böðvarsson lagði upp sigurmark Kolbeins Sigþórssonar í 2-1 sigri Íslands á Englandi í 16-liða úrslitum EM 2016 í Nice í kvöld. Selfyssingurinn var að vonum í skýjunum þegar hann ræddi við blaðamenn eftir leikinn. „Ég er orðinn uppiskroppa með lýsingarorð. Þetta er fáránlegt og ótrúlegt og það bjóst enginn við þessu fyrir mót, kannski ekki einu sinni við sjálfir,“ sagði Jón Daði sem hefur skorað eitt mark og gefið eina stoðsendingu á EM. Hann segir að íslensku leikmennirnir hafi mikla trú á sjálfum sér. „Við vorum ekki með neinum smáliðum í riðli í undankeppninni og frá henni höfum haft þvílíka trú á okkur. Sama hvaða liði við mætum, við viljum bara vinna og það er æðislegt hugarfar,“ sagði Jón Daði sem fannst Englendingarnir ekkert sérstaklega hættulegir í seinni hálfleik. „Mér fannst þeir ekki skapa sér mjög mikið. Þeir voru meira með boltann en mér fannst við spila frábæran varnarleik. Raggi Sig átti leik lífs síns og liðið í heild sinni. Svo reyndum við Kolli að halda boltanum frammi svo liðið næði aðeins að anda.“ Ísland mætir heimaþjóðinni Frakklandi í 8-liða úrslitum á sunnudaginn kemur. En hvað gerist þar? „Sigur, við ætlum að halda áfram á sömu braut,“ sagði Jón Daði að lokum.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira