ISIS fór í gegnum varnir Kúrda Samúel Karl Ólason skrifar 3. maí 2016 10:51 Frá víglínum Kúrda. Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins brutu sér leið í gegnum víglínu Kúrda í norðurhluta Írak í nótt. Árásir voru gerðar á nokkrum stöðum með víglínunni og byrjuðu þær á mörgum sjálfsmorðsárásum vígamanna. Um tíma tókst vígamönnunum að yfirtaka bæ fyrir aftan víglínu Kúrda. Bandarískur hermaður féll í átökunum. Þetta er í þriðja sinn sem bandarískur hermaður fellur í Írak á síðustu mánuðum.Samkvæmt Reuters fréttaveitunni er sjaldgæft að ISIS-liðar nái að brjóta sér leið í gegnum víglínu Kúrda. Allt frá því að Bandaríkin byrjuðu að styðja Kúrda í norðanverðu Írak í ágúst 2014, hafa Kúrdar ýtt ISIS hægt og rólega til baka. Yfirmaður Peshmergasveita Kúrda segir þetta vera stærstu árás ISIS í marga mánuði. Tekist hafi að frelsa bæinn sem ISIS liðar tóku með aðstoð loftárása, en bardagar standi þó enn yfir.Ash Carter, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að bandaríski hermaðurinn hafi fallið nærri Irbil, norður af Mosul. Hann hafi fallið „vegna skothríðar frá óvini“.AP fréttaveitan hefur heimildir fyrir því að hann hafi verið þrjá til fimm kílómetra fyrir aftan víglínuna þegar hann féll. Þar var hann að leiðbeina Peshmergasveitunum í orrustunni.
Mið-Austurlönd Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira