Þaulsætnasti forseti heims endurkjörinn Jóhann Óli Eiðsson skrifar 26. apríl 2016 23:37 Theodoro Obiang Nguema Mbasogo verður 74 ára gamall í júní.
Teodoro Obiang Nguema Mbasogo bar örugglega sigur úr býtum í forsetakosningum Miðbaugs Gíneu sem fram fóru á sunnudag. Útlit er fyrir að hann hafi hlotið 99,2 prósent greiddra atkvæða. Fjallað er um málið á Washington Post. Kosningarnar nú voru þær fyrstu í landinu frá stjórnarskrárbreytingum sem gerðar voru árið 2011. Sú breyting takmarkar setu forseta í embætti við tvö sjö ára kjörtímabil. Að auki var embætti varaforseta komið á fót og getur hann tekið við falli forseti frá á kjörtímabilinu. Mbasogo hefur nú þegar setið í stóli forseta frá árinu 1979. Þá komst hann til valda eftir blóðuga byltingu. Hann er þaulsetnasti forseti heimsins. Kamerúninn Paul Byia er hins vegar þaulsetnasti kjörni þjóðhöfðingi heimsins. Hann sat hins vegar nokkur ár sem forsætisráðherra áður en hann varð forseti. Hin nýja stjórnarskrá þýðir að Mbasogo getur í mesta lagi setið í forsetastóli í fjórtán ár til viðbótar. Fyrri kjörtímabil hans hafa ekki áhrif á leyfi hans til að sitja áfram þar sem þau voru í tíð eldri stjórnarskrár. „Ég er frambjóðandi fólksins. Hver sá sem kýs mig ekki er andvígur friði og fylgjandi óreiðu og óvissu í landinu,“ sagði Mbasogo á kjörfundi í höfuðborginni Malabo. „Margir segja að þeir séu leiðir á að sjá mig eftir 36 ár. Það má vel vera en ég hef helgað lífi mínu þessu landi.“
Miðbaugs-Gínea Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira