ISIS beittu sinnepsgasi gegn Kúrdum í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2016 17:26 35 Kúrdar veiktust í árásinni. Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins beittu sinnepsgasi sveitum Kúrda í Írak í fyrra. 35 menn veiktust eftir stórskotaárás ISIS og hefur lengi verið talið að gasinu hafi verið beitt. Efnavopnastofnunin hefur nú staðfest það. Þetta er í fyrsta sinn sem efnavopnum er beitt í Írak, frá falli Saddam Hussein. Efnavopnastofnunin (OPCW) hefur ekki birt niðurstöður rannsóknar sinnar en, en fréttamenn Reuters ræddu við embættismenn í Írak og starfsmenn stofnunarinnar. Stofnunin hafði þó áður staðfest að sinnepsgasi hefði verið beitt í Sýrlandi í fyrra. Ekki liggur hins vegar fyrir hvernig ISIS komust yfir efnavopn, né hvort þeir eigi enn slík vopn. Embættismaður sem Reuters ræddi við sagði líklegt að vopnin hefðu komið úr vopnabúri stjórnvalda Sýrlands. Sé það rétt, er ljóst að stjórnvöld þar hafi logið til um efnavopn sín. Þeim var eytt af OPCW árið 2013 og 2014. Hundruð manna létu lífið í Damascus árið 2013 þegar saríngasi var skotið á úthverfi borgarinnar. Vesturveldin sökuðu stjórnarher Assad um að framkvæma árásina en forsetinn hefur ávalt neitað því. Annar sérfræðingur sem rætt var við segir mögulegt að ISIS hafi sjálfir framleitt vopnin í Mosul. Þar búi þeir yfir þeim efnum sem til þarf og kunnáttu.
Mið-Austurlönd Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira