Þingmenn setja spurningarmerki við forgangsröðun Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 23. apríl 2015 13:00 þingað Þrettán þingfundadagar eru eftir samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, hefur lagt ríka áherslu á að hún haldi. Samkvæmt henni verður þingfrestun 29. maí.fréttablaðið/stefán
Gildi þjóðfánans og grænar baunir í dós frá Ora. Um þetta ræddu alþingismenn á þingfundi á þriðjudag. Vel kann að vera að einhverjum þyki þetta léttvægt umræðuefni í þeirri stöðu sem nú er uppi í þjóðfélaginu. Það gleymist þó oft í umræðunni um störf þingmanna að þeir þurfa líka að gefa sér tíma til að sinna málum sem ekki eru upp á líf og dauða. Starf þingmanna á ekki að vera eintóm krísustjórnun. Fjölmargir heimildarmenn Fréttablaðsins í hópi þingmanna hafa þó sett spurningarmerki við forgangsröðunina. Eins og sjá má á listanum hér til hliðar eru ýmis stórmál á dagskránni. Mikið hefur verið rætt um húsnæðisfrumvörp félagsmálaráðherra, en enn er beðið tveggja þingmála ráðherra í þeim málaflokki. Ekki má nefnilega gleyma því að ekki er búið að loka fyrir að ný mál komi á dagskrá, þótt framlagningarfrestur sé útrunninn. Leita þarf afbrigða til að hleypa málum á dagskrá, en þau eru oftar en ekki auðfengin. Mikið hefur til að mynda verið rætt um verðtrygginguna og hvernig verður dregið úr vægi hennar. Ekki er annað að skilja á Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra að staðan á þinginu bjóði ekki upp á svo stórt mál fyrir þingfrestun. „Ég skal ekki fullyrða um það hvort við komum því að á þessu þingi, enda á svo sem enn eftir að mæla fyrir um tuttugu málum í fyrstu umræðu á þessu þingi. Það verður handleggur að ljúka þinginu, þó að við séum ekki að bæta á nýju máli.“En býst Bjarni við að hægt verði að ljúka þeim málum sem þegar eru komin fram? „Já, við höfum svo oft staðið frammi fyrir því að það séu allt að 100 mál óafgreidd þegar það er jafnvel vika, tíu dagar eftir af þingstörfum. Já, já, ég held að við munum ljúka öllum okkar mikilvægustu málum.“ Eins og Bjarni segir þarf fjöldi mála ekki að þýða að ekki takist að afgreiða þau. Þegar samkomulag næst við stjórnarandstöðuna verða málin afgreidd á færibandi, það er venjan. Staðan nú gefur stjórnarandstöðunni hins vegar meira vald yfir því hvaða mál fara í gegn. Og það segir sig sjálft að minni málahraði getur komið niður á fagmennsku. Þarnæsta vika er nefndavika. Því ríður á að afgreiða sem flest mál til nefndar fyrir þann tíma svo nefndirnar hafi úr einhverju að moða. Næsta vika verður annasöm á Alþingi.Mál sem eftir á að mæla fyrir: Forsætisráðherra Þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Nýting landsréttinda, óbyggðanefnd o.fl. Utanríkisráðherra Framkvæmd samnings um klasasprengjur. Heildarlög. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Byggðaáætlun og sóknaráætlanir. Heildarlög. Dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim. Leyfisveitingar og EES-reglur. Framleiðsla, verðlagning og sala búvöru o.fl.Umsjón og útgreiðsla beingreiðslna. Innflutningur dýra. Erfðaefni holdanautgripa. Félags- og húsnæðismálaráðherra Húsaleigulög. Réttarstaða leigjenda og leigusala. Húsnæðissamvinnufélög. Réttarstaða búseturéttarhafa og rekstur húsnæðissamvinnufélaga. Innanríkisráðherra Dómstólar. Fjöldi hæstaréttardómara. Lögræðislög. Réttindi fatlaðs fólks, svipting lögræðis o.fl. Meðferð einkamála o.fl. Aukin skilvirkni, einfaldari reglur. Norðurlandasamningur um erfðir og skipti á dánarbúum. Samgöngustofa og loftferðir. Gjaldskrárheimildir og EES-reglur. Siglingalög. Bótaábyrgð farsala o.fl., EES-reglur. Almannavarnir o.fl. Valdheimildir stjórnvalda o.fl. Tekjustofnar sveitarfélaga. Sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði. Vopnalög. Skoteldar, EES-reglur. Mennta- og menningarmálaráðherra Höfundalög. EES-reglur, munaðarlaus verk. Höfundalög. EES-reglur, lengri verndartími hljóðrita. Höfundalög. Einkaréttindi höfunda, samningskvaðir o.fl., EES-reglur. Heilbrigðisráðherra Lyfjalög. Lyfjagát, EES-reglur. Sjúkratryggingar og lyfjalög. Heilbrigðisþjónusta yfir landamæri, EES-reglur) Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Heildarlög. Fjölgun dómara í Hæstarétti Frumvarp Ólafar Nordal innanríkisráðherra um breytingu á lögum um dómstóla er komið fram, en ekki er búið að mæla fyrir því og það er ekki komið á dagskrá þingsins. Samkvæmt því á að fjölga dómurum við Hæstarétt Íslands tímabundið um einn frá og með 1. september. „Er með þessum tillögum brugðist við því mikla álagi sem enn er á réttinum,“ segir í athugasemdum við lagafrumvarpið. Fjölgunin á að vera frá og með 1. september og á að falla niður 31. desember 2016.Staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni Eitt frumvarpa Kristjáns Júlíussonar heilbrigðisráðherra sem bíða fyrstu umræðu fjallar um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Um gríðarlega viðkvæmt mál er að ræða sem vekur upp miklar tilfinningar í samfélaginu, enda hefur orðið mikil umræða um málið. Samkvæmt frumvarpinu er staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni aðeins heimil við ákveðnar aðstæður. Líkt og áður segir er málið umdeilt og við því má búast að þingmenn muni vilja ræða málið í þaula.
Alþingi Mest lesið Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Innlent Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Erlent Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Innlent Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Innlent Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Erlent Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Innlent Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Innlent Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Innlent Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Erlent Réðust á tvo menn á göngu Innlent Fleiri fréttir Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Um níutíu hælisleitendur setið í fangesli síðustu mánuði fyrir brottvísun Kryfja mál Ásthildar Lóu fyrir opnum tjöldum Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Engin hópnauðgun um páskana á borði lögreglu Nýtt met slegið í fjölda giftinga Benedikt telur undanbrögð útvarpsstjóra grátleg Vill þyngri refsingar fyrir alvarleg kynferðisbrot Tekur við sem framkvæmdastjóri Bergsins Headspace Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Alþingi kemur saman á ný eftir páskafrí Réðust á tvo menn á göngu Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Höllu dreymir um að fá gróðurhús á Bessastaði Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Hælisleitendur í einangrun: Versta úrræðið sem hægt er að beita Geðheilbrigði í fangelsum og fækkun lóu og spóa Áætlun Trump gangi engan veginn upp Vill selja bílastæðahús borgarinnar og Iðnó Ráðamenn hneykslast á Exit-auglýsingu SFS Sjá meira