Óbreytt stjórn forsenda fyrir aðild Grikkja Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. janúar 2015 09:15 Afstaða Merkel til þátttöku Grikkja í evrusamstarfinu er sögð hafa breyst. NordicPhotos/afp
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gæti þrýst á um að Grikkland hætti í evrusamstarfinu, ef ný ríkisstjórn tekur við völdum í Grikklandi. Kosið verður eftir þrjár vikur. Þýska blaðið Der Spiegel hefur eftir heimildarmönnum sínum að verði Alexis Tsipras, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Grikklandi, oddviti ríkisstjórnar að kosningum loknum yrði ríkinu ekki stætt að taka þátt í evrusamstarfinu. Der Spiegel segir að Merkel og Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, telji ekki lengur að það verði svo hættulegt fyrir evrusamstarfið að þátttöku Grikkja í því myndi ljúka. Gríska þingið var rofið á miðvikudag, en kosið verður þann 25. janúar. Ríkisfjármálin þar hafa verið ákaflega erfið að undanförnu. Mikið hefur verið skorið niður á nýliðnum árum til þess að ríkið gæti uppfyllt skilyrði Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir neyðarlánum sem hafa verið veitt. Talsmenn Alternative für Deutschland, sem berst gegn aðild Þýskalands að Evrópusambandinu, fagna þessum breyttu áherslu Merkel. „Ég fagna því að Merkel og Schäuble skuli viðurkenna að Grikkir geti yfirgefið evrusamstarfið,“ sagði Bernd Lucke, formaður flokksins, við þýsku DPA-fréttastofuna.
Grikkland Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira