Fjármálaráðherrar öryggisráðsríkja SÞ samþykkja áætlun gegn ISIS Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. desember 2015 23:40 Liðsmaður ISIS veifar fána samtakanna. vísir/getty
Fjármálaráðherrar ríkjanna fimmtán sem mynda öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna hafa sammælst um áætlun til að knésetja ISIS. Stefnt er að því að þjóðirnar komi í veg fyrir að fjármunir nái að komast til samtakanna. Frá þessu er greint á vef BBC. Áætlunin er áþekk þeirri sem gripið var til árið 1999 og stefndi að því marki að fjársvelta al-Qaeda. Meðal þess sem á að gera er að koma í veg fyrir smygl á olíu og fornminjum frá samtökunum. Þeir hópar sem styðja við bak samtakanna með einhverjum hætti geta síðan búist við því að eignir þeirra verði frystar. Áþekk ályktun var samþykkt á vettvangi öryggisráðsins í febrúar en hún virðist ekki hafa virkað sem skyldi. Stafar það af því að henni hefur í reynd lítið verið fylgt. Skæruliðahreyfingin ISIS er af mörgum talin sú allra auðugsta í heiminum en áætlað er að tekjur þeirra á mánuði nemi áttatíu milljónum dollara eða tæplega 10,5 milljörðum íslenskra króna.
Mið-Austurlönd Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira