Þorsteinn Már hefur endanlegt ákvörðunarvald Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. júlí 2015 12:51 Þorsteinn Már í leiknum gegn Rosenborg í gær. Vísir/Valli
Þorsteinn Már Ragnarsson, leikmaður KR, má ákveða sjálfur hvort hann fari frá KR fyrir mánaðarlok eða klári samning sinn við félagið. Þetta staðfesti Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, í samtali við Vísi. „Þorsteinn Már hefur endanlegt ákvörðunarvald í þessu máli. Það ríkir heiðursmannasamkomulag um það,“ sagði Kristinn sem veit ekki hvort að sóknarmaðurinn öflugi ætli að fara frá KR eða ekki. „Ég held hreinlega að hann sé ekki að hugsa um það núna. Hann hefur staðið sig vel með KR og ég hef ekki rætt þetta sérstaklega við hann að undanförnu,“ sagði Kristinn. „Og ég hef ekki heyrt neitt sem bendir til þess að hann sé að fara.“ Þorsteinn Már var í byrjunarliði KR gegn Rosenborg í forkeppni Evrópudeildar UEFA í gær en fór meiddur af velli í fyrri hálfleik. Enn er óvitað hversu lengi hann verður frá. Hann var maður leiksins er KR vann sannfærandi sigur á Víkingi, 3-0, í Pepsi-deild karla um helgina en hann skoraði eitt og lagði upp annað fyrir KR. Þorsteinn Már hefur verið sterklega orðaður við Breiðablik og fékk leyfi til að ræða við forráðamenn Breiðabliks og Stjörnunnar. Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks, sagði eftir þær viðræður að Þorsteinn Már væri mjög spenntur fyrir Breiðabliki.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Leggja ríginn til hliðar í tvo klukkutíma Sport Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Enski boltinn „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Handbolti Fleiri fréttir Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Sjá meira