Tveir skotnir til bana á myndakeppni af Múhameð Samúel Karl Ólason skrifar 4. maí 2015 10:04 Vísir/AP
Tveir árásarmenn voru skotnir til bana í Texas í Bandaríkjunum í nótt. Þeir hófu skothríð á öryggisvörð við myndasamkeppni af spámanninum Múhameð. Sprengjusérfræðingar voru kallaðir út til að leita í bíl þeirra. Lögregluþjónar skutu mennina til bana. Samkvæmt talsmanni lögreglunnar höfðu þeir ekki fengið viðvaranir um árásir á keppnina og er ekki vitað hvort að myndakeppnin hafi tengst árásinni, samkvæmt AP fréttaveitunni. Öryggisvörðurinn lifði árásina af en þurfti að fara á sjúkrahús. Samtökin American Freedom Defense Initiative héldu keppnina og voru tíu þúsund dalir, eða um 1,3 milljónir króna, í verðlaun fyrir bestu teikninguna af Múhameð. Samkvæmt Íslam eru allar teikningar af spámanninum guðlast og hafa slíkar teikningar leitt til ofbeldis út um allan heim. Lík árásarmannanna voru ekki færð frá bílnum í fyrstu, þar sem lögreglan óttaðist að á þeim, eða í bílnum sem þeir lágu við, væru sprengjur. Vígamaður Íslamska ríkisins segir á Twitter að árásin hafi verið gerð af mönnum sem væru hliðhollir ISIS. IS Fighter Forwards Alleged Claim of Shooting in Texas http://t.co/6douWL98pE— SITE Intel Group (@siteintelgroup) May 4, 2015
Mið-Austurlönd Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Sjá meira