ISIS-liðar sleppa um 200 Jasídum Atli Ísleifsson skrifar 8. apríl 2015 20:10 Fólkið sem var sleppt var allt eldra fólk og veikburða. Vísir/AFP
Liðsmenn hryðjuverkasamtakanna ISIS hafa sleppt um tvö hundruð Jasídum sem hefur verið haldið föngnum í fleiri mánuði. Fólkinu var rænt þegar ISIS-liðar réðust á þorp Jasída í norðvesturhluta Íraks.Í frétt Reuters segir að fólkið sem var sleppt hafi verið eldra fólk og veikburða. Fréttamaður Reuters segir að fólkið hafi verið afhent öryggissveitum Kúrda nærri bænum Kirkuk. Fjöldi gíslanna hafi bæði verið of úrvinda og svo illa haldnir að þeir hafi ekki getað tjáð sig við hermennina. Eldri kona segist hafa verið rænt í lok ágústmánaðar þegar ISIS-liðar hröktu öryggissveitir Kúrda á brott í Sinjar-héraði. ISIS-liðar drápu þá fleiri hundruð Jasída, auk þess að fleiri þúsund voru tekin til fanga. Konan, sem sagðist ekki vilja koma fram undir nafni, segist hafa sagt syni sínum og tveimur dætrum að flýja þegar þau hafi séð ISIS-liðana nálgast þorpið í ágúst. Sjálf sagðist hún ætla að verða eftir þar sem hún hafi ekki viljað halda aftur af börnum sínum á flótta. „Ég hafði gefið upp alla von að sjá börnin mín aftur, en það gerðist í dag.“ ISIS-liðar beindu sjónum sínum meðal annars að Jasídum síðastliðið sumar þar sem þeir álíta þá vera djöfladýrkendur. Sumir Jasídanna segja að þeim hafi veirð haldið í Tel Afar, einu helsta vígi hryðjuverkasamtakanna.
Mið-Austurlönd Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira