Leifur dæmir sinn fyrsta bikarúrslitaleik í ellefu ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2015 10:00 Leifur Garðarsson og Sigmundur Már Herbertsson. Sigmundur hefur dæmt átta úrslitaleiki síðan Leifur dæmdi síðast í bikarúrslitunum árið 2004. Vísir/Ernir
Úrslitaleikir Poweradebikars karla og kvenna í körfubolta fara fram í Laugardalshöllinni um helgina og dómaranefnd KKÍ hefur raðað dómurum á leikina. Sigmundur Már Herbertsson og Björgvin Rúnarsson dæma kvennaleikinn á milli Keflavíkur og Grindavíkur en hann hefst klukkan 13.30 á laugardaginn. Leifur Garðarsson, Kristinn Óskarsson og Jón Guðmundsson dæma karlaleikinn sem er á milli KR og Stjörnunnar og hefst klukkan 16.00 á laugardaginn. Leifur Garðarsson er að fara dæma sinn tíunda bikarúrslitaleik á ferlinum en það eru samt ellefu ár síðan að hann flautaði síðast í bikarúrslitaleik. Leifur dæmdi bikarúrslitaleik árið 2004. Leifur lagði flautuna á hilluna í tíu ár en byrjaði aftur að dæma á síðasta tímabili. Þar liggur skýringin á því að hann hefur ekki fengið bikarúrslitaleik í meira í árartug. Kristinn Óskarsson er að fara dæma sinn fjórtánda bikarúrslitaleik á ferlinum og þetta verður þrettándi bikarúrslitaleikur Sigmundar Más Herbertssonar. Björgvin Rúnarsson dæmir sinn níunda bikarúrslitaleik og Jón Guðmundsson sinn fjórða. Kristinn dæmir jafnframt sinn tíunda bikarúrslitaleik karla en hann hefur dæmt sjö af síðustu fjórtán úrslitaleikjum karlanna. Þetta verður aftur á móti fyrsti bikarúrslitaleikur hans í karlaflokki frá 2011. Jón hefur ekki dæmt bikarúrslitaleik með Kristni eða Leif en Leifur og Kristinn dæmdu saman bikarúrslitaleik karla árin 1998 og 2002. Pétur Hrafn Sigurðsson er eftirlitsmaður í kvennaleiknum en Rúnar Birgir Gíslason er eftirlitsmaður í karlaleiknum.Fjórtán bikarúrslitaleikir Kristins ÓskarssonarBikarúrslitaleikir karla: 10 (1992, 1995, 1998, 2002, 2005, 2007, 2008, 2010, 2011 og 2015)Bikarúrslitaleikir kvenna: 4 (1991, 2006, 2012 og 2014)Þrettán bikarúrslitaleikir Sigmundar Más HerbertssonarBikarúrslitaleikir karla: 8 (2000, 2003, 2006, 2007, 2009, 2011, 2012 og 2014)Bikarúrslitaleikir kvenna: 5 (1997, 1998, 2010, 2013 og 2015)Tíu bikarúrslitaleikir Leifs GarðarssonarBikarúrslitaleikir karla: 7 (1991, 1994, 1998, 1999, 2002, 2004 og 2015)Bikarúrslitaleikir kvenna: 3 (1993, 2001 og 2003)Níu bikarúrslitaleikir Björgvins RúnarssonarBikarúrslitaleikir karla: 3 (2005, 2011 og 2013)Bikarúrslitaleikir kvenna: 6 (1997, 2003, 2006, 2007, 2009 og 2015)Fjórir bikarúrslitaleikir Jóns GuðmundssonarBikarúrslitaleikir karla: 3 (2009, 2013 og 2015)Bikarúrslitaleikir kvenna: 1 (2008)
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Fjórða sætið, í alvöru? Enski boltinn Sagði konu sinni og börnum að lesa ekki kommentin Fótbolti Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Handbolti Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Handbolti Ferðaðist nærri 9000 km og borgaði fúlgur fjár fyrir ógildan miða Enski boltinn Wirtz alveg kominn með nóg af einni ráðleggingu Enski boltinn Varar við áhorfendum á Ryder Cup: „Hey Rahmbo, hvar er Ozempicið?“ Golf Baðst afsökunar eftir algjöra „heimsku“ Enski boltinn Bandarísku kylfingarnir gefa Ryder-launin eftir gagnrýni Golf Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Enski boltinn Fleiri fréttir Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Sjá meira