Ég kom sjálfri mér alveg rosalega á óvart Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. nóvember 2014 07:00 Eygló Ósk Gústafsdóttir stal senunni á ÍM 25 um helgina þar sem hún bætti sex Íslandsmet og jafnaði það sjöunda. Vísir/Pjetur „
Ég er alveg yfir mig ánægð með árangurinn en á sama tíma rosalega hissa á hvernig gekk,“ segir Eygló Ósk Gústafsdóttir, sunddrottningin úr Ægi, nú ÍBR, við Fréttablaðið um árangurinn á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug um síðustu helgi. Eygló drottnaði yfir mótinu og vann í heildina níu gullverðlaun; tvenn á fyrsta degi, þrenn á öðrum degi og fern á þriðja degi. Til viðbótar við það setti hún sex Íslandsmet og jafnaði það sjöunda. „Ég var smá veik í síðustu viku og leið því ekkert rosalega vel í vatninu, en það virtist ekki skipta miklu máli. Ég kom sjálfri mér alveg rosalega á óvart. Þetta var gjörsamlega geðveikt,“ segir hún glöð í bragði.Hvíldin var góð Eygló keppti ekki á EM í 50 metra laug í sumar heldur tók hún sér gott frí. Þessi 19 ára Ólympíufari og afreksmaður hefur lagt mikið á sig undanfarin ár og fannst tími til kominn að halda sig á þurru landi í nokkrar vikur. „EM var svo rosalega seint í ár. Ég hefði þurft að æfa alveg fram í lok ágúst og fá þá aðeins tveggja vikna frí sem mér fannst of lítið. Ég ákvað að fórna einu EM til að fá gott frí,“ segir Eygló og heldur áfram. „Ég hef ekki fengið almennilegt frí til að slaka á síðan ég var þrettán eða fjórtán ára gömul. Ég tók því bara rólega í sumar og synti ekki í fimm og hálfa viku. Það kom sér vel því eftir þrjár vikur var ég orðin svo spennt fyrir því að byrja aftur. Þetta vakti bara meiri áhuga hjá mér.“ Sundmenn eru þekktir fyrir það að æfa ótrúlega mikið og á ókristilegum tímum. Eygló viðurkennir fúslega að það séu ekki alltaf jólin þegar kemur að því að búa sig undir sundmót. „Það getur verið alveg ótrúlega erfitt að æfa og sérstaklega klukkan fimm á morgnana. Það er ekkert sem maður hlakkar til. En ef maður er með markmið og er ákveðinn í því sem maður ætlar að gera þá er þetta allt þess virði þegar maður uppsker eins og um helgina.“Leyfir sér að dreyma Næst á dagskránni hjá Eygló Ósk og fleiri íslenskum sundköppum sem náðu lágmörkum um helgina er heimsmeistaramótið í 25 metra laug sem haldið verður í Doha í Katar 3.-7. desember. „Aðalgreinarnar mínar þar verða baksundin auðvitað og svo sé ég til með fjórsundið. Það skýrist allt þegar nær dregur,“ segir Eygló, en 200 metra baksund er hennar sterkasta grein. Í þeirri grein stórbætti hún eigið Íslandsmet um helgina þegar hún synti á 2:04,78 mínútu. Ársgamalt met hennar var 2:06,56 mínútur og bætingin því upp á tæpar tvær sekúndur sem er ótrúlegur árangur. „Ég hef sjaldan verið jafnhissa og þegar ég sneri mér við á bakkanum og sá tímann. Þjálfarinn minn var búinn að segja mér að ég gæti synt á 2:05,00 mínútum þannig ég sagðist ætla að reyna það. En síðan hélt ég bara rosalega vel út sundið, betur en nokkru sinni áður. Þetta eru æfingarnar að skila sér,“ segir Eygló. Sunddrottningin kynnti sér sjálf hvar þessi tími setur hana á meðal þeirra bestu í ár. „Ég er númer ellefu á heimslistanum og í fimmta sæti í Evrópu,“ segir hún. Blaðamaður bendir henni svo á að þessi tími hefði dugað henni til bronsverðlauna á HM í 25 metra laug fyrir tveimur árum. Er það lúmskur draumur hjá henni fyrir mótið í Doha? „Það væri draumurinn. Mann dreymir auðvitað stórt. Ég ætla mér fyrst og fremst að komast í úrslit og þegar þangað er komið þá getur allt gerst. Ég ætla mér að synda hratt í Doha en síðan kemur í ljós hverju það skilar mér,“ segir Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Sund Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Tindastóll - Valur | Heimsækja erfiðan útivöll Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira