Rúrik spilaði meiddur gegn Madrídingum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. desember 2013 15:45 Rúrik í baráttu við Gareth Bale í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Rúrik Gíslason lét meiðsli í kálfa ekki hindra sig og spilaði allan leikinn með FCK gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær. „Ég fæ vonandi prik fyrir það að spila þrátt fyrir meiðslin,“ sagði Rúrik í samtali við danska fjölmiðla eftir leikinn í gær en fram kom í frétt bold.dk um málið að hann hafi átt erfitt með gang um helgina. „En það er kannski ágætt að það sé ekki leikur eftir þrjá daga,“ bætti hann við en FCK er nú komið í vetrarfrí í Danmörku, auk þess sem að þetta var síðasti Evrópuleikur liðsins í vetur. Rúrik var hrósað fyrir frammistöðuna í gær þrátt fyrir að Real Madrid hafi unnið, 2-0. Hann var einn fárra leikmanna FCK sem lét varnarmenn Madrídinga vinna fyrir kaupinu sínu. „Ég fékk ekki sérstök tilmæli um að spila á ákveðinn hátt en svona vil ég spila fótbolta. Ég vil fara framhjá andstæðingum mínum eins oft og ég get í leiknum og það gekk ágætlega að þessu sinni,“ sagði Rúrik. „En Real Madrid er með virkilega gott lið og fer ef til vill alla leið í Meistaradeildinni í ár. Þetta er besta liðið í okkar riðli enda kosta varamenn liðsins meira en allt FCK-liðið til samans.“
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Valur - Ármann | Halda Valsarar sigurgöngunni áfram? Körfubolti Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira