Jón Margeir hjálpaði karlasveit Fjölnis að bæta tólf ára Íslandsmet Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2013 21:21 Jón Margeir Sverrisson. Mynd/Fésbókarsíða Jóns Margeirs
Jón Margeir Sverrisson setti fimm Íslandsmet á fyrsta degi Íslandsmeistaramótsins í 25m laug sem hófst í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld og heldur síðan áfram í dag og á morgun. Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra fer fram samhliða Íslandsmótinu Jón Margeir kórónaði afmælisdaginn sinn, 21 árs í dag, með því að synda fyrsta sprettinn með boðsundssveit Fjölnis í 4 x 200 metra skriðsundi en Fjölnir vann gullið og bætti tæplega þrettán ára gamalt Íslandsmet. Fjölnismenn syntu á tímanum 7.34,50 mínútum og settu Íslandsmet en gamla metið átti sveit SH, 7.35,34 og var það frá því í mars árið 2001. Sveit Fjölnis skipuðu þeir: Jón Margeir Sverrisson, Kristinn Þórarinsson, Hilmar Smári Jónsson og Daníel Hannes Pálsson. Jón Margeir hafði fyrr um daginn tvíbætt Íslandsmet sitt í 400 metra skriðsundi, sett met í 200 metra flugsundi og fyrsti spretturinn hans í boðssundinu var Íslandsmet í 200 metra skriðsundi. Jón Margeir hjálpaði síðan eins og áður sagði Fjölni að setja Íslandsmet í boðsundinu. Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi bætti eigið Íslandsmet í tveimur greinum. Fyrst í í 200 metra baksundi þegar hún synti til sigurs á tímanum 2.06,59 mínútum. Gamla metið hennar var 2.07,10 mínútur frá því í desember 2011. Eygló var þó ekki hætt og setti einnig Íslandsmet í 200 metra fjórsundi er hún synti á tímanum 2.13,41 mínútum og bætti gamla metið sitt frá því í október 2011 um tæpar tvær sekúndur (2.15,10 mínútur).
Sund Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og Alonso mætir á Anfield Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira