Teitur Örlygs gaf alla verðlaunapeningana sína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2013 06:00
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnumanna í Domnios-deild karla í körfubolta, viðurkenndi það í viðtali við Sverrir Bergmann í þættinum Liðið mitt að þessi einn allra sigursælasti körfuboltamaður Íslands ætti enga hluti til minningar frá mögnuðum ferli sínum. „Ég væri alveg til í að eiga alla þessa verðlaunabikara og allt þetta dót núna," segir Teitur í spjallinu við Sverri Bergmann. „Þetta skipti mig ekki máli því ég var alltaf bara að hugsa um eitthvað meira og bara næsta titil. Ég bar ekki virðingu fyrir því sem ég var búinn að gera," sagði Teitur. Teitur varð tíu sinnum Íslandsmeistari og sjö sinnum bikarmeistari með Njarðvík á árunum 1984 til 2003. „Amma konunnar minnar klippti alltaf út úr blöðunum og ég sé þetta svolítið hjá henni. Þá er það eitthvað sem ég var löngu búinn að gleyma," sagði Teitur. „Ég hafði það ekki í mér að safna þessum hlutum og þessu dóti og losaði mig bara við þetta. Gaf krökkum þetta eða eitthvað. Þetta var fólk sem átti kannski bágt og fannst þetta virkilega spennandi," segir Teitur. Það er hægt að sjá allt viðtalið við Teit með því að smella á tengilinn hér fyrir ofan. Þátturinn Liðið mitt er á dasgkrá á Stöð 2 Sport á föstudagskvöldum klukkan 18.55 og næst verður fjallað um Val.
Dominos-deild karla Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Fótbolti Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Sjá meira