Snæfellskonur komust í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2012 18:15 Mynd/Stefán
Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna eftir átta stiga sigur á Haukum, 77-68, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Snæfell er búið að vinna riðilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir því Valskonur, sem unnu Fjölni í lokaleik sínum, verða alltaf neðar en Snæfell á tapi í innbyrðisleik liðanna. Systurnar Berglind Gunnarsdóttir hjá Snæfelli og Gunnhildur Gunnarsdóttir hjá Haukum voru stigahæstar hjá sínum liðum í leiknum. Berglind skoraði 25 stig á 30 mínútum en hún setti niður 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum. Gunnhildur var með 17 stig fyrir Hauka. Kieraah Marlow var með 19 stig og 8 fráköst hjá Snæfelli, Hildur Sigurðardóttir bætti við 13 stigum, 10 fráköstum og 7 stoðsendingum og Alda Leif Jónsdóttir var með 8 stig og 7 stoðsendingar. Jóhanna Björk Sveinsdóttir var næststigahæst hjá Haukum með 15 stig. Valur vann 21 stigs sigur á Fjölni, 69-48, í Vodafonehöllinni en Valur var þó bara einu stigi yfir í hálfleik, 26-26. Unnur Lára Ásgeirsdóttir skoraði 13 stig fyrir Val og Guðbjörg Sverrisdóttir var með 12 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar. Alberta Auguste lék sinn fyrsta leik með Val og var með 11 stig á 16 mínútum. Porsha Porter skoraði mest fyrir Fjölni eða 15 stig. Snæfell mætir Keflavík í úrslitaleiknum en Keflavíkurkonur voru búnar að vinna riðilinn fyrir lokaumferðina. Úrslitaleikurinn fer fram í Keflavík á fimmtudaginn.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Körfubolti Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Enski boltinn Sunnudagsmessan: Hver hefur komið mest á óvart? Enski boltinn Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Körfubolti Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Handbolti Ekitike tryggði sigurinn og fór beint í sturtu Enski boltinn Barcelona vill fá Rashford á tombóluverði Enski boltinn Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Körfubolti Rúnar Már og Amin missa af stórleiknum upp á Skaga Íslenski boltinn Mbappé með tvennu í sjöunda sigri Real í röð Fótbolti Fleiri fréttir Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Sjá meira