Darrel Lewis til Keflavíkur: Hefur saknað Nonnabita Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júní 2012 10:30 Darrel Lewis í leik á móti KR.
Darrel Lewis spilar með Keflavík í Dominosdeildinni á næsta tímabili en Lewis er íslenskur ríkisborgari sem getur spilað bæði skotbakvörð og lítinn framherja. Hann var frábær með Grindvíkingum á árunum 2002 til 2005 en hefur síðan spilað á Ítalíu og í Grikklandi. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur. Darrel Lewis lék þrjú tímabil með Grindavík á árunum 2002 til 2005 og þá með 26,6 stig, 7,5 fráköst og 5,5 stoðsendingar að meðaltali. Lewis hefur síðan leikið á Ítalíu og í Grikklandi en á síðasta tímabili lék hann með OF Irakleio í grísku 2. deildinni þar sem hann var meði tæp 15 stig í leik. Darrel Lewis er orðinn 36 ára gamall. Það má finna viðtal við Darrel Lewis á heimasíðu Keflavíkur. „Ég hlakka til að spila aftur á Íslandi. Ég hef alltaf ætlað mér að koma aftur eftir að hafa notið velgengni þar í nokkur ár. Það mun eflaust verða svolítið öðruvísi að klæðast Keflavíkurbúningnum í ljósi þess að Keflavík var alltaf erfiðasti mótherji minn," sagði Darrel Lewis. „Ég hef breytt leik mínu mikið síðan ég spilaði með Grindavík. Ég myndi segja að eftir að hafa spilað í mismunandi löndum sé leikstíll minn orðinn mun þróaðri og fjölbreyttari," sagði Darrel Lewis en hvað verður það fyrsta sem Darrel mun gera þegar hann kemur til Íslands? „Ég mun byrja á því að þakka Guði fyrir að hafa komist öruggur á leiðarenda. Síðan mun ég halda til Reykjavíkur á veitingastað sem selur samlokur, sem ég held að heiti „Nonnabiti", því ég hef saknað hans."
Dominos-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira