Afturelding hélt sæti sínu í N1 deild karla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. apríl 2011 21:00 Ásgeir Jónsson skoraði fimm mörk í kvöld.
Afturelding tryggði sér 2-0 sigur í úrslitaeinvíginu í umspili N1 deild karla í handbolta með því að vinna sjö marka sigur á Stjörnunni, 25-18, í öðrum leik liðanna í Mýrinni í kvöld. Afturelding vann þar með alla fjóra leiki sína í umspilinu og heldur því sæti sínu í N1 deild karla. Daníel Jónsson og Ásgeir Jónsson skoruðu báðir fimm mörk fyrir Aftureldingu og þeir Sverrir Hermannsson og Reynir Ingi Árnason voru báðir með fjögur mörk. Tandri Már Konráðsson skoraði fimm mörk fyrir Stjörnuna. Mosfellingar unnu þar með umspilið annað árið í röð en þeir tryggðu sér sætið í N1 deild karla á þessu tímabil með því að vinna sigur á Gróttu í úrslitaeinvíginu í fyrra. Grótta komst upp í N1 deild karla með því að vinna 1. deildina. Leikurinn var jafn framan af og liðin skiptustu á því að hafa forystuna en Mosfellingar skoruðu þrjú af fjórum síðustu mörkum fyrri hálfleiks og voru 10-8 yfir í hálfleik. Daníel Jónsson skoraði tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks og kom Aftureldningu fjórum mörkum yfir, 12-8 og eftir það var róðurinn þungur fyrir Garðbæinga. Stjarnan náði að minnka muninn í tvö mörk en komst ekki nær og Mosfellingar slitu sig endanlega frá þeim um miðjan hálfleikinn þegar þeir brettu stöðunnu úr 14-12 í 20-14. Stjarnan-Afturelding 18-25 (8-10)Mörk Stjörnunnar: Tandri Már Konráðsson 5, Eyþór Már Magnússon 3, Finnur Jónsson 2, Guðmundur Sigurður Guðmundsson 2, Jón Arnar Jónsson 2, Vilhjálmur Ingi Halldórsson 2, Elvar Örn Jónsson 1, Sverrir Eyjólfsson 1.Mörk Aftureldingar: Ásgeir Jónsson 5, Daníel Jónsson 5, Reynir Ingi Árnason 4, Sverrir Hermannsson 4, Bjarni Aron Þórðarson 3, Jóhann Jóhannsson 2, Hilmar Stefánsson 1, Þrándur Gíslason 1.
Olís-deild karla Mest lesið Tók dóttur sína með sér í sjónvarpsviðtalið og hún sló í gegn Sport „Á þriggja daga fresti líður mér öðruvísi“ Enski boltinn Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Körfubolti Eini Ólympíufari Írana kemst ekki Sport Úkraína gerði betur en Ísland á móti heimsmeisturunum Fótbolti Fyrrum heimsmeistari í tveggja ára bann fyrir „feluleik“ Sport Belgísku stelpurnar blómstra undir stjórn Betu Fótbolti Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Óttast að landsliðskonur verði stimplaðar föðurlandssvikarar Fótbolti Dúfa stöðvaði leik Orra og félaga í gær Fótbolti Fleiri fréttir Donni sneri aftur eftir aðgerð KA upp um tvö sæti með algjörum risasigri Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Tvær landsliðskonur urðu eftir heima vegna höfuðhögga Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Sjá meira