Handbolti

Titil­vörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu

Sindri Sverrisson skrifar
Blomberg-Lippe vann þýska ofurbikarinn fyrir viku, með sigri gegn Dortmund, og fagnaði í dag sigri í fyrstu umferð þýsku deildarinnar.
Blomberg-Lippe vann þýska ofurbikarinn fyrir viku, með sigri gegn Dortmund, og fagnaði í dag sigri í fyrstu umferð þýsku deildarinnar. Getty/Angelika Warmuth

Þýskalandsmeistarar Blomberg-Lippe, áfram með íslenskar landsliðskonur innanborðs, vann 37-34 sigur gegn Göppingen í fyrstu umferð þýsku 1. deildarinnar í handbolta í dag.

Eftir að hafa unnið Dortmund í oddaleik í vor og orðið Þýskalandsmeistari í fyrsta sinn þurfti Blomberg-Lippe að sjá á eftir Andreu Jacobsen til ÍBV í sumar.

Þær Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir eru hins vegar áfram í herbúðum meistaranna og létu til sín taka í dag. Díana skoraði þrjú mörk úr jafnmörgum skotum og átti einnig tvær stoðsendingar, og Elín Rósa skoraði tvö mörk úr þremur skotum.

Þýska landsliðskonan Nieke Kühne var markahæst hjá meisturunum með níu mörk úr þrettán skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×