Nick Bradford aftur til Grindavíkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2011 20:13 Nick Bradford. Mynd/Rósa
Víkurfréttir segja frá því á vefsíðu sinni í kvöld að Nick Bradford sé á leiðinni til Grindavíkur og muni klára tímabilið með liðinu. Bradford fór á kostum með Grindavíkurliðinu veturinn 2008 til 2009 en hann þekkir allt körfuboltaáhugafólk á Íslandi endaer Bradford búinn að spila hér mörgum sinnum á síðasta áratug. Bradford hefur leikið með öllum Suðurnesjaliðunum, Keflavík, Njarðvík og Grindavík, á síðustu tveimur tímabilum en hann spilaði bæði fyrir Njarðvík og Keflavík á síðustu leiktíð. Bradford hafði áður orðið tvisvar sinnum Íslandsmeistari með Keflavík árin 2004 og 2005. Samkvæmt þessu hafa Grindvíkingar látið bandaríska bakvörðinn Kevin Sims fara en Sims klikkaði meðal annars á 14 af 16 skotum sínum í bikarúrslitaleiknum á móti KR um síðustu helgi þar sem Grindavík tapaði með 22 stiga mun. Bradford var í miklum ham í Grindavíkurbúningnum veturinn 2008-2009 þegar Grindavík var einu skoti frá því að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Bradford var þá með 20,4 stig, 6,5 fráköst og 3,2 stoðsendingar að meðaltali í leik en í úrslitakeppninni var hann með 23,7 stig að meðaltali.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sport Fleiri fréttir Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Sjá meira